Einfaldaðu lífið með Odoo

Bókhaldið, salan, vefurnn, vefverlsunin, birgðir, innkaup, tímaskráningar, verkumsjón, CRM, POS kerfi, og allt hitt í einu og sama kerfi sem vex með þér til frambúðar.  Hugsaðu til framtíðar með Odoo!

Kynntu þér Odoo - þú verður ekki fyrir vonbrigðum.

Allt fyrirtækið í einu kerfi, á vefnum og í appi

Einfalt, þægilegt og umfram allt, hagkvæmt!  


Skoða lausnir  Verð 

Hvað er Odoo?

Odoo er  samansafn viðskiptalausna (kerfiseiningar eða apps) sem allar vinna saman sem ein heild, í einu og sama kerfinu.  Svo í stað þess að vera með mörg kerfi sem ekki eru tengd saman ertu með eitt kerfi og öll gögnin á sama stað.  Borgar eitt áskriftargjald í stað þess að borga mörg áskriftargjöld og sleppur við að endalausa samræmingu ótengdra gagna.

Með Odoo fækkar þú tölvukerfum og einfaldar alla vinnu og ferla, eykur sjálfvikni og skilvikni allra til frambúðar.  

Odoo hentar smáum sem stórum fyrirtækjum og fyrirtækið þitt er í lausn sem vex með fyrirtækinu svo ekki þarf að skipta um kerfið þegar umfangið eykst.

Hafa samband Bóka kynningarfund


Odoo á 2 mínútum


 

SVEIGJANLEIKI


  • Auðvelt að læra
  • Stækkar með fyrirtækinu
  • Dreifð vinnsla
  • Valfrjálsar kerfiseiningar
  • Einfalt að aðlaga
  • Fjöldi tungumála
  • Einfalt að aðlaga með Odoo Studio

 

SJÁLFVIRKNI


  • Sjálfvirkt bókhald
  • Skilgreindir verkferlar
  • Tengt tölvupósti fyrirtækisins
  • Tengingar við samfélagsmiðla
  • Áminningar


 

SKILVIRKNI


  • Einn gagnagrunnur
  • Engar tvískráningar
  • Samnýting gagna
  • Miðlun upplýsinga
  • Eitt kerfi í stað margra
  • Miðlægar upplýsingar

Öll gögnin á einum stað

Geymdu öll gögn fyrirtækisins á einum og sama staðnum.  Tengdu tölvupóstinn við kerfið og vistaðu öll skjöl og samninga, og hvað annað, í kerfinu. 

Öll gögn eru þá á einum og sama staðnum og alltaf aðgengileg.  Nýttu tímann í eitthvað annað en endalausa leit!

Heyrðu í okkur    60 daga frí prufuáskrift

UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINA


Nútímalausn

Exigo þróar og aðlagar lausnir, byggðar á alþjóðlega viðskiptakerfinu Odoo, fyrir íslensk fyrirtæki í íslensku viðskiptaumhverfi.  Frá árinu 2011 hefur Exigo sérhæft sig þjónustu við Odoo sem er með yfir 5 milljónir notenda um allan heim. 

Odoo er veflausn sem er þekkt fyrir hagkvæmni í rekstri, sveigjanleika og öflugt lausnaframboð sem hentar flestum fyrirtækjum.

Veflausn

Odoo er 100% veflausn sem keyrir á öllum tækjum og er aðgengileg hvar og  hvenær sem er.

Láttu ekki úrelta tækni aftra þér og vertu með allar upplýsingar aðgengilegar hvar og hvenær sem er. 

Heyrðu í okkur    Verð

HEILDARLAUSN SNIÐIN AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM


Exigo hefur verið samstarfsaðili Odoo síðan 2011 og hefur á þeim tíma hjálpað íslenskum fyrirtækjum í margvíslegri starfsemi að ná auknu hagræði og skilvirkni í rekstri með lausnum sínum.

Hafðu samband og láttu okkur um að leysa tölvumálin. Svo að þú getir einbeitt þér að rekstrinum. 

UM EXIGO  HAFA SAMBAND