Fara í efni
eXigoLaunakerfi

Launakerfi Exigo

Öflugt launakerfi sem einfaldar launavinnslur.

Prófaðu reiknivélina hér fyrir neðan. Hún reiknar launaseðil mánaðarins á sama hátt og Launakerfi Exigo, með skatthlutföllum og þrepamörkum ársins 2026.

Launakeyrslan verður tilFöst mánaðarlaun koma sjálfkrafa í launakeyrslu síðasta virka dag mánaðarins. Vinnustundir lestu inn úr Excel eða tengdum tímaskráningarkerfum.
Þú ferð yfir og bókarHver launaseðill sýnir launaliði, frádrátt og útborgun, og launin bókast á réttu lyklana í bókhaldinu.
Launaseðlar til starfsfólksStarfsfólk fær launaseðilinn í tölvupósti.
64 stéttarfélögGjöld hvers félags eins og félögin birta þau, með lágmarki og hámarki.

Hvað gerir Launakerfi Exigo?

Reiknar launinStaðgreiðslu í þrepum, persónuafslátt, tryggingagjald, lífeyrisiðgjöld, séreign og gjöld 64 stéttarfélaga.
Greiðir launinLaunaskrá fyrir netbankann með kennitölu, bankareikningi og upphæð hvers starfsmanns, og launaseðlar í tölvupósti.
Bókar um leiðLaunakeyrslan bókast beint í fjárhaginn, svo launakostnaðurinn sést strax. Sé bókhaldið annars staðar sækirðu bókunarskrá keyrslunnar.
Orlof og vinnustundirOrlof í krónum, tímum eða dögum. Vinnustundir úr Excel eða tengdum tímaskráningarkerfum.
FrádrátturFyrirframgreiðslur, meðlag og eftirágreiddir skattar dragast rétt frá.
Þú velur starfsmenninaÍ hverri launakeyrslu velurðu hvaða starfsmenn eru með, og bætir við eða tekur út áður en þú bókar.
Auðvelt að leiðréttaBókaða keyrslu með villu bakfærirðu, afritar í ný drög með sömu launaliðum, lagar og bókar aftur.
Skilar rafræntStaðgreiðsla og tryggingagjald til Skattsins, skilagreinar til lífeyrissjóða og stéttarfélaga, og launamiðar í janúar ár hvert.

Einfalt að skipta

Við flytjum gögnin úr gamla launakerfinu fyrir þig: starfsmannaskrá, lífeyrissjóði, stéttarfélög og orlofsstöðu.

Kjarasamningstöflur og vaktaálag?

Fyrirtækjaútgáfa Launakerfis Exigo með kjarasamningstöflum og vaktaálagi er væntanleg. Bókaðu kynningu og við finnum lausn sem hentar.

Launareiknivél

Tekjuár 2026
kr.
Starfshlutfall
Orlof
Séreignarsparnaður
Launagreiðandi greiðir 2% mótframlag á móti séreign starfsmanns.
Persónuafsláttur og lífeyrissjóður
Nýttur persónuafsláttur
Útborguð laun–
Heildarkostnaður launagreiðanda–

Hvert fara launin?

Launaseðill

Einn mánuður

Launakerfi Exigo reiknar laun alls starfsfólksins á sama hátt, mánuð eftir mánuð. Bókaðu kynningu og sjáðu það með þínum launum.

Bóka kynningu