Leiðarvísar > Fjármál > Payment providers

AsiaPay

AsiaPay er greiðsluþjónusta á netinu sem er með aðsetur í Hong Kong og þjónar nokkrum Asíulöndum með ýmsum greiðslumáta.

Uppsetning í AsiaPay stjórnborði

  1. Skráðu þig inn í AsiaPay stjórnborð samkvæmt aðganginum sem AsiaPay útvegaði.

    • PayDollar: Fyrir markaði í HK, CN, MO, TW, SG, MY, IN, VN, NZ og AU
    • PesoPay: Fyrir markað í PH
    • SiamPay: Fyrir markað í TH
    • BimoPay: Fyrir markað í ID
  2. Farðu í Profile → Account Information. Afritaðu gildin úr reitunum Currency og Secure Hash og vistaðu þau til síðari notkunar.
  3. Farðu í Profile → Payment Account Settings og virkjaðu valkostinn Return Value Link (Datefeed).

    Sláðu inn vefslóð Odoo gagnagrunnsins þíns og bættu við /payment/asiapay/webhook í textareitinn Return Value Link (Datefeed). Til dæmis: https://yourcompany.odoo.com/payment/asiapay/webhook.

    Smelltu á Test til að athuga hvort webhook virki rétt.

  4. Smelltu á Update til að ljúka uppsetningunni.

Uppsetning í Odoo

  1. Farðu í greiðsluþjónustuna AsiaPay og breyttu stöðunni í Enabled.
  2. Í flipanum Credentials velurðu Brand fyrir Asiapay aðganginn þinn. Fylltu síðan inn Merchant ID og Secure Hash Secret, og Currency í flipanum Configuration með gildunum sem þú vistaðir í skrefi Uppsetning í AsiaPay stjórnborði.

    Sjálfgefið er að greiðsluþjónustan AsiaPay sé stillt til að sannreyna leynilykil með hash-fallinu SHA1. Ef annað fall er stillt á aðganginn þinn, virkjaðu forritarastillingu og stilltu sama gildið í reitinn Secure Hash Function í flipanum Credentials.

  3. Stilltu aðra valkosti að eigin ósk.

Sjá einnig

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.