Xendit
Xendit er indónesískt greiðslulausnarfyrirtæki sem starfar í nokkrum löndum Suðaustur-Asíu. Það gerir fyrirtækjum kleift að taka við greiðslukortum auk nokkurra staðbundinna greiðslumáta.
Uppsetning á Xendit stjórnborðinu
- Stofnaðu Xendit aðgang ef þörf krefur og skráðu þig inn á Xendit stjórnborðið.
- Athugaðu stillingu aðgangsins í efra vinstra horni síðunnar. Notaðu Test Mode til að prófa tenginguna án þess að rukka viðskiptavini. Skiptu yfir í Live Mode þegar þú ert tilbúin/n að taka við greiðslum.
- Farðu í vinstra megin á síðunni. Í Developers hlutanum skaltu smella á API Keys.
- Smelltu á Generate Secret Key. Í sprettiglugganum sem birtist skaltu slá inn eitthvað API key name, velja Write fyrir Money-in Products heimildina og None fyrir allar aðrar heimildir og smella síðan á Generate key.
- Staðfestu lykilorðið þitt til að birta API lykilinn. Afritaðu eða sæktu lykilinn og geymdu þessar upplýsingar á öruggum stað til síðari notkunar. Þetta er eina skiptið sem hægt er að skoða eða sækja API lykilinn.
- Þegar því er lokið skaltu skruna niður síðuna að Webhooks hlutanum til að búa til webhook lykilinn.
- Undir Webhook verification token skaltu smella á View Webhook Verification Token og staðfesta síðan lykilorðið þitt til að birta lykilinn. Geymdu hann til síðari notkunar.
- Í Webhook URL hlutanum skaltu slá inn vefslóð Odoo gagnagrunnsinns, fylgt eftir með
/payment/xendit/webhook(t.d.https://example.odoo.com/payment/xendit/webhook) í reitinn Invoices paid og smella á Test and save hnappinn við hliðina.
Uppsetning í Odoo
- Farðu í greiðsluveituna Xendit og breyttu stöðunni í Enabled.
- Fylltu út reitina Secret Key og Webhook Token með upplýsingum sem þú vistaðir í skrefinu Uppsetning á Xendit stjórnborðinu.
- Stilltu aðra valkosti eftir þínum þörfum.
Sjá einnig