Amazon Payment Services
Amazon Payment Services eða APS er greiðslumiðlun á netinu sem er staðsett í Dúbaí og býður upp á ýmsa greiðslumöguleika á netinu.
Uppsetning á APS stjórnborði
- Skráðu þig inn á Amazon Payment Services stjórnborðið og farðu í . Búðu til Access Code ef ekkert hefur verið búið til enn. Afritaðu gildin úr reitunum Merchant Identifier, Access Code, SHA Request Phrase og SHA Response Phrase og vistaðu þau til síðari notkunar.
- Sláðu inn vefslóð Odoo gagnagrunnsinns þíns í Origin URL, til dæmis:
https://yourcompany.odoo.com/. Smelltu síðan á Save Changes. - Farðu í og smelltu á Redirection. Gakktu úr skugga um að Status sé stillt á
Activeog veldu þær greiðsluaðferðir sem þú vilt nota undir Payment Options. - Stilltu Send Response Parameters á Yes og sláðu inn vefslóð gagnagrunnsinns þíns fylgt eftir með
/payment/aps/returní reitinn Redirection URL.
Til dæmishttps://yourcompany.odoo.com/payment/aps/return.
Sláðu inn vefslóð gagnagrunnsinns þíns fylgt eftir með/payment/aps/webhookí reitina Direct Transaction Feedback og Notification URL.
Til dæmishttps://yourcompany.odoo.com/payment/aps/webhook.
Smelltu á Save Changes. - Undir getur þú sérsniðið útlit og hönnun greiðslusíðu Amazon Payment Services (þar sem viðskiptavinir fylla út kreditkortaupplýsingar sínar við greiðslu).
Uppsetning í Odoo
- Farðu í greiðslumiðlunina Amazon Payment Services, breyttu stöðunni í Enabled og gakktu úr skugga um að hún sé Published.
- Í flipanum Credentials skaltu fylla út Merchant Identifier, Access Code, SHA Request Phrase og SHA Response Phrase með þeim gildum sem þú vistaðir í skrefinu Uppsetning á APS stjórnborði.
- Stilltu aðra valkosti eftir þínum óskum.