Leiðarvísar > Sala > Kassakerfi

Greiðslumátar

Til að bæta við greiðslumáta þarftu fyrst að búa hann til. Farðu í Afgreiðslukerfi → Stillingar → Greiðslumátar → Nýr og settu inn heiti. Hakaðu við Auðkenna viðskiptavin til að leyfa þennan greiðslumáta eingöngu fyrir skráða viðskiptavini.

Veldu síðan Dagbók. Veldu Reiðufé til að nota þennan greiðslumáta fyrir staðgreiðslur, eða Banki til að nota hann fyrir kortagreiðslur.

Að búa til nýjan greiðslumáta fyrir afgreiðslukerfi.

Athugið

Ef þú velur banka dagbók birtist sjálfkrafa reiturinn Nota greiðslustöð þar sem þú getur bætt við upplýsingum um greiðslustöðina þína.

Þegar greiðslumátinn hefur verið búinn til geturðu valið hann í stillingum afgreiðslukerfisins. Farðu í stillingar afgreiðslukerfisins, smelltu á Breyta og bættu greiðslumátanum við undir kaflanum Greiðslur.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.