Leiðarvísar > Bókhald > Bókhald > Bank

Stjórnun lána

Lánastýring í Odoo sýnir heildaryfirlit yfir öll lán fyrirtækisins til að tryggja skýra mynd af væntanlegum gjalddögum (t.d. sjóðstreymisspá). Settu upp afborgunaráætlun—eða flyttu hana inn—og láttu Odoo sjá um mánaðarlega vaxtaupphæð og leiðréttingu höfuðstóls þannig að fjárhagsskýrslur séu alltaf réttar með lágmarks vinnu.

Stofna nýtt lán

Farðu í Bókhald --> Bókhald --> Lán til að stofna nýtt lán. Við stofnun láns eru þrír kostir til að búa til afborgunaráætlun:

  • flytja hana inn úr studdri skrá;
  • reikna hana út frá nokkrum inntaksbreytum (t.d. Lánsupphæð, Tímalengd o.s.frv.) með því að smella á hnappinn Reikna;
  • fylla út línur áætlunarinnar handvirkt.

Í öllum tilvikum þarf þrjú svið á hverri línu í afborgunaráætluninni: Dagsetning, Höfuðstóll og Vextir.

Ef summa línanna passar ekki við heildarupphæð afborgunaráætlunarinnar munu svæðin Lánsupphæð, Vextir og Tímalengd litast rauð.

Vinnsla lánsfærslna

Þegar lántökufé er lagt inn á bankareikning skal færa það yfir á langtímareikning (skilgreindur í flipanum Lánsstillingar). Við staðfestingu lánsins býr Odoo til nauðsynlegar bókhaldsfærslur þannig að alltaf sé til heildaryfirsýn og spá um væntanlega gjalddaga. Ferlið er sjálfvirkt með endurflokkun höfuðstóls milli langtíma og skammtíma.

Fyrir hverja línu í afborgunaráætluninni býr Odoo til eftirfarandi færslur:

Greiðslufærsla á sama degi sem:

  • debetar höfuðstól á langtímareikning;
  • debetar vexti á kostnaðarreikning;
  • kreditar greiðsluupphæð á skammtímareikning; þetta er sú fjárhæð sem bankinn mun innheimta.

Endurflokkunarfærsla á sama degi sem:

  • debetar samtölu höfuðstóls næstu 12 mánaða á langtímareikning;
  • kreditar samtölu höfuðstóls næstu 12 mánaða á skammtímareikning.

Afturfærsla endurflokkunarfærslunnar næsta dag sem einfaldlega snýr fyrri færslu við.

Með þessu fyrirkomulagi er skammtímareikningurinn í hverjum mánuði uppfærður með réttum skammtímagjöldum.

Loka láni

Sjálfgefið lokast lán þegar síðasta greiðslufærsla er bókuð. Einnig er hægt að loka láni handvirkt (t.d. ef því er greitt upp fyrir tímann) með því að smella á hnappinn Loka. Leiðarvísir birtist sem spyr frá hvaða dagsetningu eigi að loka láninu. Allar drögfærslur eftir þá dagsetningu verða einnig eyddar.

Hægt er að ógilda lán. Þá verða allar færslur eyddar, jafnvel þótt þær hafi þegar verið bókaðar.

Greining lána

Farðu í Bókhald --> Yfirferð --> Greining lána til að sjá skýrslu með Pivot-sýn yfir virk lán. Sjálfgefið sýnir skýrslan höfuðstól, vexti og heildargreiðslu fyrir hvert ár út líftíma láns.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.