Leiðarvísar > Þjónusta > Verkbókhald / verkefnastjórnun > Tasks

Endurtekin verk

Við vinnu í verkefni þarf oft að framkvæma sama verkið oftar en einu sinni, t.d. vikuleg fundarhöld eða stöðuskýrslur. Eiginleikinn endurtekin verk gerir þér kleift að sjá um sjálfvirka stofnun slíkra verka.

Stillingar

Til að virkja endurtekin verk í verkefni skaltu fara í Project, smella á (lóðrétt þrípunktamerki) við eitt af verkefnunum þínum og velja Stillingar. Opnaðu flipann Stillingar, leitaðu að Stjórnun verka og gakktu úr skugga um að Endurtekin verk sé virkt.

Setja upp endurtekningu verks

Í fyrirliggjandi verki skaltu smella á (Endurtekið) hnappinn við hliðina á reitnum Lokadagsetning. Stilltu síðan reitinn Endurtaka á eftir þínum þörfum.

Nýtt verk í röðinni verður stofnað þegar stöðu fyrra verks er breytt í Lokið eða Hætt við.

Nýja verkið er stofnað á verkefnatöflunni með eftirfarandi stillingum:

  • Stig: stillt á fyrsta stig verkefnatöflunnar (Nýtt eða sambærilegt);
  • Heiti, Lýsing, Verkefni, Ábyrgðaraðilar, Viðskiptavinur, Merki: afritast af upprunalega verkinu;
  • Lokadagsetning: uppfærð út frá reitnum Endurtaka á (t.d. ef verkið er stillt til að endurtaka vikulega, bætast 7 dagar við lokadagsetninguna);
  • Áfangar, Tímaskráningar, Samskipti (Chatter), Aðgerðir, Undirverk: afritast ekki af upprunalega verkinu.

Þegar endurtekning hefur verið stillt birtir snjalltakkinn á verkinu heildarfjölda endurtekninga sem fyrir eru.

Breyta eða stöðva endurtekningu verks

Til að breyta endurtekningunni skaltu opna síðasta verkið í röðinni. Allar breytingar á verkinu verða notaðar á þau verk sem verða stofnuð framvegis.

Til að stöðva endurtekninguna skaltu opna síðasta verkið í röðinni og ýta á Endurtekið hnappinn við hliðina á Áætluð dagsetning.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.