Leiðarvísar > Vefir > Vefverslun > Stillingar

B2B og B2C

Odoo eCommerce er hannað bæði fyrir B2B og B2C. Þú getur stillt verð, stýrt aðgangi fyrir tiltekna viðskiptavini og aðlagað vefsvæði fyrir B2B, B2C eða bæði.

Verð

B2C selur beint til neytenda með verði með VSK, en B2B sýnir yfirleitt verð án VSK og kýs jafnvel að fela verð og einungis sýna vörur. Til að setja upp B2B-verslun skaltu tryggja að valkosturinn Án VSK sé virkur og ljúka stillingu til að fela verð.

Ábending

Til að aðeins viðskiptavinir með aðgang og heimild sjái verð: Farðu í Vefsvæði → Vefverslun → Viðskiptavinir, smelltu á táknið (fellivalmynd) í leitarslánni og veldu síuna Í geymslu. Smelltu svo á kortið Almennur notandi, farðu á flipann Sala og innkaup og bættu við 0-kr. verðskrá sem er stillt til að ná yfir öll lönd. Haltu tengiliðnum Almennur notandi alltaf í geymslu. Gestir sjá nú vörur án verðs, en aðeins boðnir viðskiptavinir með úthlutaða verðskrá geta séð verð í Mínum síðum (þjónustugátt).

Beiðni um aðgang

Í B2B er yfirleitt verði falin í versluninni og sýnd aðeins innskráðum notendum. Til að koma í veg fyrir frjálsa skráningu skaltu stilla Aðgangur viðskiptavina á Með boði. Til að búa til síðu þar sem viðskiptavinir biðja um aðgang skaltu opna vefritilinn, búa til eyðublað, sérsníða það og velja í reitnum Aðgerð valkostinn Búa til viðskiptavin.

Ábending

Þú getur úthlutað merkjum sem skilgreind eru á tengiliðum undir Vefsvæði → Stillingar → Viðskiptavinir til að auðkenna hvaða tegund viðskiptavina sendi inn eyðublaðið. Veldu reit í eyðublaðinu í Breyta-ham, smelltu á hnappinn + Reitur undir flipanum Stíll og stilltu Tegund reitsins á Merki. Veldu hvaða merki eigi að úthlutast sjálfkrafa þegar viðskiptavinur sendir inn eyðublaðið og stilltu Sýnileiki á Falið.

Þegar viðskiptavinur sendir inn eyðublaðið stofnast nýr tengiliður sjálfkrafa í gagnagrunninum. Tengiliðnum er úthlutað fyrstu verðskránni af tiltækum verðskrám og, ef við á, skilgreindum merkjum.

Innsendar beiðnir finnast í Vefsvæði → Vefverslun → Viðskiptavinir. Veldu viðskiptavininn sem þú vilt veita aðgang að þjónustugátt. Að því loknu sér hann B2B-verð og vörur. Gakktu úr skugga um að rétt verðskrá sé úthlutuð á tengiliðinn.

Ábending

Mörg vefsvæði

Stillingar eru sérstakar fyrir hvert vefsvæði, þannig að hægt er að stilla mismunandi hegðun á hverju vefsvæði. Til dæmis má setja upp B2C-vef sem leyfir gestagreiðslu og sýnir verð með VSK, og B2B-vef sem krefst innskráningar og sýnir verð án VSK. Athugaðu þó að hver verðskrá má aðeins tengjast einu vefsvæði í einu. Ef nota á sömu verðskrá á nokkrum vefsvæðum skaltu afrita verðskrána og tengja hverja útgáfu við sitt vefsvæði.

Ábending

Ef þú rekur bæði B2B og B2C mælum við eindregið með tveimur aðskildum vefsvæðum: úthlutaðu 0-kr. verðskrá á B2B-vefinn og venjulegri verðskrá á B2C-vefinn. Ef þú kýst eitt vefsvæði skaltu stilla landahópa, úthluta verðskrám á viðskiptavini og afvirkja valkostinn Valanleg.

Aukaeiginleikar

Reikningur

Eftir viðskiptagerð (B2B eða B2C) gætirðu viljað gefa út reikning. Reikningur getur annað hvort myndast sjálfkrafa (fyrir B2B) eða eftir ósk viðskiptavinar (fyrir B2C). Hægt er að sjálfvirknivæða þetta þegar staðfesting á netgreiðslu liggur fyrir. Til að virkja sjálfvirka reikningagerð skaltu kveikja á stillingunni Sjálfvirkur reikningur. Sé hún ekki virk fær viðskiptavinur eingöngu pöntunarstaðfestingu.

B2B-reitir í greiðsluferli

Á síðunni Yfirlit pöntunar skaltu opna vefritilinn, fara á flipann Stíll og kveikja á rofanum Sýna B2B-reiti til að birta B2B-sértæka viðbótarreiti, s.s. VSK-númer eða Heiti fyrirtækis, í afhendingarskrefinu.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.