Leiðarvísar > Sala > CRM > Optimize

Modúll fyrir aðild/samstarf

Modúllinn fyrir aðild/samstarf gerir kleift að búa til og selja aðildir. Hægt er að selja aðildir bæði í gegnum sölupantanir og áskriftarvörur, þannig að fyrirtæki geti skipulagt og átt samskipti við viðskiptavini sem félaga. Þetta gerir m.a. kleift að:

  • mæla virkni, óvirkni, nýskráningar og brottfallsprósentu
  • skoða endurnýjanir og lok aðilda
  • fylgja eftir félagsgjöldum og tengdum greiðslum
  • hafa samskipti við félaga, m.a. senda hóppósta út frá núverandi stöðu félaga
  • úthluta mismunandi aðildarstigum
  • skipuleggja viðburði eingöngu fyrir félaga
  • búa til félagalista með tengiliðaupplýsingum og öðrum upplýsingum um félaga

Modúll fyrir aðild/samstarf vs. appið Membership

Frá og með 19.0 hefur appið Membership verið leyst af hólmi af modúlnum fyrir aðild/samstarf. Modúllinn inniheldur alla virkni appsins Membership, en er betur samþættur við önnur lykilforrit án þess að krefjast tiltekins Bókhalds apps. Þessi breyting raskar ekki fyrirliggjandi aðildargögnum við uppfærslu í 19.0.

Samþættingar við modúlinn fyrir aðild/samstarf

Eftir virkjun er modúllinn fullkomlega samþættur við forritin Sala og Áskriftir. Hann er einnig samhæfur Vefverslun þannig að viðskiptavinir geti keypt aðildir á vef fyrirtækis.

Að lokum er modúllinn samhæfður verðlistum bæði fyrir og eftir sölu. Hægt er að skilgreina verðreglur áður en aðildir eru seldar og beita þeim eftir að aðild er virk.

Virkjun nýja modúlsins

Hægt er að virkja modúlinn fyrir aðild/samstarf í CRM appinu. Farðu í CRM > Uppsetning > Stillingar. Í kaflanum CRM skaltu haka við gátreitinn Aðild / samstarf til að virkja modúlinn. Einnig er hægt að sérsníða heitið sem notað er um félaga. Sjálfgefið er það Members.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.