Leiðarvísar > Mannauður > Payroll

Launagreining

Yfirlitið Launagreining sýnir heildar nettólaun fyrirtækisins síðustu 365 daga. Þetta yfirlit gerir fyrirtækjum kleift að skoða launakostnað og greina þróun.

Farðu í Laun → Skýrslugerð → Laun til að opna Launagreiningu.

Nettólaun er sjálfgefin mæling í yfirlitinu, en hægt er að birta aðrar mælingar, t.d. brúttólaun eða daga í launuðu fríi. Smelltu á Mælingar til að opna fellivalmynd með fleiri mælingum og veldu þá sem þú vilt sýna.

Yfirlit launa sem sýnir síðustu 365 daga.

Skoða margar mælingar

Hægt er að skoða margar mælingar samtímis í Pivot-sýn. Það hjálpar stjórnendum að greina aðra þróun, t.d. hvaða deildir taka sjaldnar frí eða hafa hæstan launakostnað.

Athugið

Aðeins ein mæling birtist í sjálfgefnu Graf-sýninni. Margar mælingar eru aðeins mögulegar í Pivot-sýn.

Til að birta gögn í Pivot-töflu, smelltu á Pivot.

Sjálfgefin gögn innihalda fjölda launaseðla (# Launaseðlar), fjölda Daga í launuðu fríi og Daga í ólaunuðu fríi, ásamt Nettólaunum og Brúttólaunum. Allt er flokkað eftir deildum.

Til að bæta við fleiri upplýsingum, smelltu á Mælingar til að opna fellivalmynd og veldu þær mælingar sem á að birta í Pivot-töflunni.

Pivot-sýn sem sýnir ýmsar mælingar.

Notkunardæmi: samanburður á launakostnaði

Stjórnendur geta borið saman launakostnað og séð hvaða deildir hafa hækkað kostnað, annaðhvort vegna fleiri ráðninga eða hærri launa.

Til að bera saman fyrri tímabil, opnaðu fyrst Launagreiningu í Pivot-sýn. Smelltu síðan á (Víxla leitarspjaldi) í leitarstikunni og smelltu á Upphafsdagur til að sjá lista yfir tímabil (mánuði, ársfjórðunga og ár). Veldu tímabil; þá birtist Samanburður í leitarstikunni. Veldu annaðhvort Upphafsdagur: Fyrra tímabil eða Upphafsdagur: Fyrra ár.

Skýrslan birtir nú þrjár dálkafærslur fyrir hverja mælingu: dálk fyrir núverandi tímabil, dálk fyrir fyrra tímabil og Breytingu, sem sýnir muninn í litkóðuðu hlutfalli (grænt fyrir hækkun, rautt fyrir lækkun).

Dæmi

Í þessu dæmi sjást hækkanir í fjölda launaseðla. Fyrirtækið greiðir laun á tveggja vikna fresti; aukning í fjölda launaseðla (# Launaseðlar) þýðir því fleiri ráðningar, hér um 500% aukning.

Auk þess hækkuðu bæði Nettólaun og Brúttólaun. Deildin RD US sýndi mestan vöxt; báðar mælingar hækkuðu um það bil 350%.

Pivot-samanburður milli tveggja ára.

Sjá einnig

Skýrslugerð

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.