Leiðarvísar > Þjónusta > Verkbókhald / verkefnastjórnun > Project management

Sniðmát verkefna

Sniðmát gera þér kleift að búa til ný verkefni með fyrirfram skilgreindum stillingum, þannig að þú þarft ekki sífellt að setja upp sambærileg verkefni frá grunni.

Stofnun sniðmáta

Til að búa til verkefnasniðmát þarf fyrst að eiga til verkefni sem er notað sem grunnur til umbreytingar í sniðmát. Þegar verkefni er umbreytt í sniðmát flytjast allir eiginleikar verkefnisins yfir í sniðumátið. Þetta felur í sér stig verkefnisins, verk, undirverk og stillingar þeirra, t.d. áætlaðar dagsetningar, stöður, úthlutaða aðila o.fl.

Opnaðu stillingar þess verkefnis sem á að umbreyta í sniðmát: Farðu í Verkefni, færðu músina yfir spjald verkefnisins, smelltu á táknið fa-ellipsis-v (lóðrétt þrípunktamerki) og veldu Stillingar. Yfirfarðu og stilltu eiginleika verkefnisins þannig að það endurspegli sniðmátið sem þú vilt.

Þegar verkefnið er tilbúið, smelltu á táknið fa-cog (gír) og veldu Umbreyta í sniðmát. Borði með textanum Sniðmát (Template) gefur til kynna að verkefninu hafi verið breytt í sniðmát.

Viðvörun

Að umbreyta verkefni í sniðmát setur upprunalega verkefnið í geymslu. Ef þú vilt halda áfram að nota verkefni sem þú ætlar að umbreyta í sniðmát, afrituðu það fyrst: færðu músina yfir spjald verkefnisins, smelltu á fa-ellipsis-v (lóðrétt þrípunktamerki) og veldu Afrita.

Ábending

Til að breyta eða eyða sniðmáti: Farðu í Verkefni --> Nýtt. Við hliðina á heiti sniðmátsins, smelltu á fa-pencil (blýants) til að breyta eða fa-trash (rusl) til að eyða. Breytingar eða eyðing á sniðmáti hafa ekki áhrif á verkefni sem áður voru búin til út frá því.

Verkefnahlutverk í sniðmátum

Sniðmát gera þér kleift að forvelja ákveðin hlutverk fyrir verk innan sniðmátsins og flýta þannig fyrir vali á ábyrgðaraðilum þegar nýtt verkefni er búið til út frá sniðmáti.

Farðu í Verkefni --> Nýtt og smelltu á fa-pencil (blýants) við heiti sniðmátsins sem á að breyta. Smelltu síðan á snjallhnappinn Verk og opnaðu eitt verkið. Í reitnum Verkefnahlutverk skaltu slá inn eða velja þau hlutverk sem eigi að sinna þessu verki og smelltu síðan á Vista.

Búðu til verkefni út frá þessu sniðmáti: Farðu í Verkefni --> Nýtt og smelltu á heiti sniðmátsins. Formið Búa til verkefni úr sniðmáti inniheldur þá Verkefnahlutverk. Fyrir hvert hlutverk geturðu valið ábyrgðaraðila með því að smella á reitinn Ábyrgðaraðilar. Réttum verkum er þá sjálfkrafa úthlutað á rétta starfsmenn.

Tímasetning verka í sniðmátum

Í verkefnasniðmáti er hægt að sjálfvirknivæða tímasetningu verka út frá áætlunum sem eru skilgreindar í sniðmátinu.

Mikilvægt

Áætlaðar dagsetningar verkefna og verka eru ekki vistaðar þegar verkefni er umbreytt í sniðmát. Þær þarf að bæta við sniðmátið eftir að það hefur verið búið til.

Settu Áætlaðar dagsetningar bæði á verkefnið og hvert verk í sniðmátinu. Ef verk hafa áætlaðar upphafsdagsetningar í sniðmátinu reiknar Odoo dagafjöldann milli upphafsdagsetningar verkefnisins og fyrsta áætlaða verks. Þetta tímabil er kallað delta.

Þegar nýtt verkefni er búið til út frá sniðmátinu:

  • Er upphafsdagsetning verkefnisins notuð sem viðmiðun.
  • Upphafsdagsetning hvers verks er sjálfvirkt stillt samkvæmt sínu delta.
  • Ef engin upphafsdagsetning er skilgreind á nýja verkefninu er núverandi dagsetning notuð sjálfgefið.
  • Lokadagsetningar verka eru síðan ákvarðaðar sjálfkrafa af tímasetningareikniriti Odoo.

Athugið

Til að tryggja að öll hlutverk og verk raðist án árekstra miðað við aðgengi og álag teymisins, reiknar reikniritið lokadagsetningu hvers verks út frá úthlutuðum tíma og tekur einnig tillit til háðra verka, aðgengis ábyrgðaraðila, vinnudagatals, leyfa og almennra frídaga.

Notkun sniðmáta

Til að búa til nýtt verkefni úr sniðmáti: Farðu í Verkefni --> Nýtt og smelltu á sniðmát í hlutanum Sniðmát verkefna. Sláðu inn heiti verkefnisins. Að auki má setja inn Viðskiptavin, Áætlaða dagsetningu og stilla tölvupóst fyrir stofnun verka. Smelltu síðan á Búa til verkefni.

Sniðmát er einnig hægt að tengja við tilteknar vörur. Til þess þarf sniðmátið að vera stillt sem Gjaldtaka:

  • Farðu í Verkefni --> Nýtt og smelltu á fa-pencil (blýants) við heiti sniðmátsins sem á að breyta.
  • Farðu á flipann Stillingar, merktu við gátreitinn Gjaldtaka og smelltu á Vista.

Stilltu síðan vöruna með því að:

  • Velja Þjónusta sem Vörutegund.
  • Velja Verkefni eða Verkefni og verk í reitnum Búa til við pöntun.
  • Velja Verkefnasniðmát og smella á Vista.
© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.