Adyen
Að tengja Adyen posa við Odoo Point of Sale býður upp á hnökralausa greiðsluupplifun fyrir viðskiptavini og einfaldar vinnu afgreiðslufólks.
Mikilvægt
- Adyen posar þurfa ekki IoT Box.
- Adyen posar eru í boði í mörgum löndum, en ekki alls staðar. Skoðaðu lista yfir lönd sem Adyen styður.
- Adyen þjónustar aðallega stærri fyrirtæki og getur krafist lágmarksfjölda færslna og lágmarks veltu í gegnum kerfið.
Stillingar Adyen
Byrjaðu á að stofna Adyen aðgang og panta posa í gegnum Adyen Customer Area. Þegar posinn er kominn, stilltu tækið samkvæmt leiðbeiningum á skjánum.
Til að tengja Adyen posann við Odoo þarftu að:
- Búa til Adyen API-lykil.
- Finna auðkenni Adyen posa (POIID).
- Finna heiti söluaðilareiknings (merchant account).
- Stilla Event URL.
Ábending
Skráðu þig inn á Test account til að prófa samþættinguna án þess að rukka viðskiptavini. Skiptu yfir á Live account þegar þú ert tilbúin(n) að taka við greiðslum.
Búa til Adyen API-lykil
Adyen API-lykillinn auðkennir beiðnir frá Adyen posa. Til að búa til lykil:
- Farðu í Adyen Customer Area.
- Farðu í í vinstri valmynd.
- Veldu til staðar auðkenni (credentials) eða búðu til ný:
- Smelltu á Create new credential.
- Í Create API credential sprettiglugga, veldu Web service user sem Credential type.
- Settu valkvætt inn Description.
- Smelltu á Create credential.
- Í hlutanum Server settings á síðunni Configure API credential, smelltu á Generate API key við hliðina á API key reitnum.
- Smelltu á (Copy API key) og vistaðu gildið fyrir skrefið stofnun greiðslumáta í Odoo.
- Smelltu á Save changes.
Sjá einnig
Finna auðkenni Adyen posa (POIID)
Auðkenni Adyen posa, einnig kallað POIID, er einkvæmt strengjaauðkenni sem auðkennir sjálft greiðslutækið.
Til að finna auðkennið:
- Farðu í Adyen Customer Area.
- Farðu í til að skoða lista yfir öll tækin þín.
Ábending
Virkt tæki er merkt með (grænn punktur).
- Veldu posann sem á að tengja.
-
Ábending
Ef þú ert með fleiri en eitt tæki, finndu rétt tæki með raðnúmerinu á bakhlið þess.
- Á síðunni Settings, smelltu á auðkennið til að afrita það á klippispjaldið og vistaðu gildið fyrir skrefið stofnun greiðslumáta í Odoo.
Upplýsingar
Auðkennið samanstendur af gerð tækis og raðnúmeri, t.d. S1F2L-000158215112256.
Finna heiti söluaðilareiknings (merchant account)
Til að finna heiti söluaðilareiknings:
- Farðu í Adyen Customer Area.
- Farðu í .
- Veldu posann sem á að tengja.
- Í stillingum posans, smelltu á heiti Merchant.
- Smelltu á heiti söluaðilareikningsins til að afrita það á klippispjaldið og vistaðu fyrir skrefið stofnun greiðslumáta í Odoo.
Stilla Event URL
Til að Odoo geti tekið á móti tilkynningum um greiðslur þarftu að stilla Event URLs á posanum. Gerðu eftirfarandi:
- Farðu í Adyen Customer Area.
- Farðu í .
- Veldu posann sem á að tengja.
- Í stillingum tækisins, veldu Integrations í vinstri valmynd.
Mikilvægt
Gakktu úr skugga um að þú sért að stilla Terminal level terminal settings, ekki Merchant level terminal settings.
- Stilltu reitinn Switch to decrypted mode to edit this setting á Decrypted.
- Smelltu á Add new eða breyttu núverandi URL með því að smella á blýantinn .
- Í Add URL eða Edit URL sprettiglugga, límdu Event URL úr greiðslumátaformi Odoo.
Upplýsingar
Event URL samanstendur af vistfanginu á vefþjóninum, á eftir fylgir /pos_adyen/notification.
- Ef þarf, settu inn Username (optional) og Password (optional), skilgreindu hvort URL sé Public eða Local, og kveiktu/slökktu á Enable encryption.
- Smelltu á Add URL, eða ef þú ert að breyta, Edit URL.
- Smelltu á Save neðst á síðunni.
- Skiptu yfir á Encrypted ham.
Stillingar í Odoo
Til að stilla Adyen í Odoo þarftu fyrst að virkja Adyen og búa til greiðslumáta. Stilltu síðan Adyen-sértæka reiti á greiðslumátaforminu:
- Límdu eftirfarandi gildi í samsvarandi reiti:
- API-lykilinn í reitinn Adyen API-lykill.
- Auðkenni posans í reitinn Auðkenni Adyen posa.
- Heiti söluaðilareiknings í reitinn Adyen söluaðilareikningur.
- Afritu Event URL með því að smella á (copy) og límdu í Adyen reikninginn.
- Virkjaðu Adyen prufuham ef þú ert enn að prófa samþættinguna.
Ábending
Hægt er að leyfa viðskiptavinum að bæta við þjórfé beint á Adyen posa, sem og eftir greiðslu í veitingasölu.
Sjá einnig