Leiðarvísar > Almennt > Notendur

Breyta tungumálum

Þú velur tungumál gagnagrunnsins þegar hann er stofnaður. Þú getur þó bætt við og sett upp fleiri tungumál svo notendur geti unnið í kerfinu á öðru tungumáli eða til að þýða vefinn þinn.

Bæta við tungumálum

Til að sækja fleiri tungumál:

  • Smelltu á prófílstáknið efst til hægri, veldu Prófíll minn og smelltu á hnattatákn við hliðina á reitnum Tungumál.
  • Farðu í Stillingar forritið og smelltu á Bæta við tungumálum í hlutanum Tungumál.

Veldu síðan tungumálin í fellivalmyndinni og smelltu á Bæta við.

Sjá einnig

Þýðingar

Breyta tungumáli

Til að velja sitt tungumál geta notendur smellt á prófílstáknið efst til hægri, farið í Prófíll minn og valið Tungumál í fellilista.

Breyta tungumáli annars notanda

Til að breyta tungumáli notanda í gagnagrunninum:

  1. Farðu í Stillingar og smelltu á Stjórna notendum í hlutanum Notendur.
  2. Smelltu á notandann sem á að breyta.
  3. Farðu á flipann Kjörstillingar og veldu áður uppsett tungumál úr fellivalmyndinni Tungumál.

Athugið

Tölvupóstur og skjöl verða send notandanum á völdu tungumáli.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.