Leiðarvísar > Sala > Kassakerfi > Payment methods > Terminals

Tyro

Tenging við Tyro greiðslutæki gerir greiðsluferlið hraðara fyrir viðskiptavini og einfaldar vinnu afgreiðslufólks.

Mikilvægt

Tyro greiðslutæki eru aðeins studd í Ástralíu.

Stillingar

Pörun greiðslutækis við kassakerfið

  1. Smelltu á táknið fa-bars (hamborgaramatseðill) og Payment settings á greiðslutækinu.
  2. Sláðu inn stjórnandalykilorðið.
  3. Skrunaðu niður og smelltu á Pair with POS.
  4. Smelltu á fa-plus Pair with POS hnappinn.
  5. Skráðu hjá þér MID (Merchant ID) og TID (Terminal ID) sem nú birtast á skjánum.

Athugið

  • Stjórnandalykilorð er lykilorðið sem þú valdir þegar tækið var stillt.
  • Skrefin til að komast á pörunarskjáinn geta verið mismunandi eftir tækjalíkani. Upplýsingar um uppsetningu mismunandi tækja er að finna á vef Tyro.

Stilla greiðslumátann

  1. Settu upp POS Tyro eininguna.
  2. Búðu til nýjan greiðslumáta:
    • Farðu í Kassakerfi --> Stillingar --> Greiðslumátar og smelltu á Nýtt.
    • Veldu Dagbók: Banki.
    • Veldu Terminal í reitnum Samþætting.
    • Veldu Tyro í reitnum Tengja við.
    • Fylltu út Tyro Merchant ID og Tyro Terminal ID með MID (Merchant ID) og TID (Terminal ID) sem birtust á tækinu.
  3. Til að para greiðslumátann við tækið skaltu smella á hnappinn Pair Terminal. Þessi aðgerð sendir pörunarbeiðni til tækisins og tekur nokkrar sekúndur.
Eyðublað til að stofna nýjan greiðslumáta.

Mikilvægt

Reiturinn Tyro Mode þarf að vera stilltur á Production Mode.

Bæta greiðslumáta við kassakerfi

Til að bæta greiðslumáta við kassakerfi:

  1. Farðu í stillingar kassakerfis (POS).
  2. Veldu kassakerfið í reitnum Kassakerfi.
  3. Bættu greiðslumátanum við í reitnum Greiðslumátar í hlutanum Greiðslur.
© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.