Stillingar
Odoo eCommerce gerir kleift að stilla vörur, flokka, afbrigði og verðlagningu. Kerfið stýrir einnig viðskiptareikningum og aðgangi og styður bæði B2B og B2C viðskiptalíkön.
Vörur
Stilltu vörur, stýrðu sýnileika þeirra, bættu við myndum og myndböndum, búðu til vörusett og tengdu stafrænar skrár. Skilgreindu sölustefnur, þýddu vörulýsingar og stýrðu birgðum og umbúðum.
Flokkar og afbrigði
Notaðu vöruafbrigði og eigindi til að bjóða margvíslega valkosti. Búðu til eigindi og vefverslunarflokka til að skipuleggja verslunina og vörusíður betur.
Verð
Stilltu mismunandi verð og skatta með einingarverði, verðskrám og afslætti. Hægt er að fela verð og takmarka sölu þegar þörf krefur.
Viðskiptareikningar
Stýrðu aðgangi að versluninni, greiðslusíðunni og Mínum síðum (þjónustugátt), og notaðu viðskiptareikninga til að styðja B2B og B2C.
B2B og B2C
Stilltu aðskildar vefsíður og verslanir fyrir B2B og B2C og sérsníddu þær að sértækum þörfum hvers líkans.
Sjá einnig