Leiðarvísar > Sala > Sala

Þóknanir

Þóknanir eru öflugt hvatatæki fyrir söluteymi: þær hvetja til afkasta, auka framleiðni og skapa heilbrigt keppnisumhverfi. Þóknanir í Odoo, í forritinu Sala, gera kleift að umbuna sölufólki eða söluteymum út frá árangri. Hægt er að skilgreina sveigjanlegar og mælanlegar þóknunaráætlanir sem styðja við markmið fyrirtækisins, hvort sem áherslan er á tekjur, magn, framlegð eða endurtekin samninga.

Uppsetning

Til að virkja þóknanir: Farðu í Sala > Stillingar. Flettu að kaflanum Reikningagerð og merktu við gátreitinn Þóknanir. Smelltu síðan á Vista. Þá bætist nýtt valmyndaratriði, Þóknanir, í efstu valmyndina. Til að stofna nýja þóknunaráætlun: Farðu í Þóknanir > Þóknunaráætlanir og smelltu á Nýtt.

Uppbygging þóknunaráætlunar

Hver áætlun samanstendur af:

  • Byggt á: Hvort þóknun miðist við Markmið eða Árangur.
  • á hvern: Hvort áætlunin gildi fyrir einstaklinga eða heilt söluteymi.
  • Tíðni markmiða: Hversu oft markmið endurstilla: Mánaðarlega, Ársfjórðungslega eða Árlega.
  • Árangur: Hvað er mælt til grundvallar þóknunum.
Ný þóknunaráætlun, eyðublað.

Markmiðsbundnar þóknunaráætlanir

Í markmiðsbundinni áætlun er þóknun greidd eftir því hversu stórt hlutfall sölumarkmiða næst. Slíkar áætlanir henta til að setja skýr, mælanleg markmið (t.d. reikningsfært upphæðarmark á ársfjórðungi) og umbuna stigvaxandi eftir því hversu nálægt eða yfir markmiðum sölufólk nær.

Ábending: Markmiðsbundnar áætlanir byggjast á föstu, fyrirfram skilgreindu marki og leggja áherslu á hvatningu með áföngum í markmiðunum.

Uppsetning: Farðu í Sala > Þóknanir > Þóknunaráætlanir og smelltu á Nýtt. Í fellivalmyndinni Byggt á skaltu velja Markmið. Veldu síðan gildi í reitnum á hvern.

Í reitnum Þóknun við markmið skilgreinir þú útborgun við 100% markmið. Uppfærðu Gildistími og stilltu Tíðni markmiða eftir því hve oft skuli setja og meta markmið:

  • Mánaðarlega: skammtímamarkmið með tíðari greiðslum.
  • Ársfjórðungslega: í takt við rekstrarlotur, gefur meðal-löng markmið.
  • Árlega: langtímamarkmið fyrir stefnumótun.

Eftir að Tíðni markmiða er stillt uppfærist flipinn Markmið með réttum tímabilum. Settu Markmið fyrir hvert Tímabil.

Á flipanum Árangur skaltu bæta við einum eða fleiri árangursmælikvörðum með því að smella á Bæta við nýjum árangri.

Opnaðu flipann Sölufólk til að úthluta áætluninni. Smelltu á Bæta við nýjum sölumanni til að bæta einstökum starfsmönnum við, eða Bæta við mörgum sölumönnum til að bæta inn hóp.

Athugið: Hnappurinn Bæta við mörgum sölumönnum er aðeins sýnilegur ef forritarastilling er virk.

Þrep

Hægt er að bæta við þóknunarþrepum í markmiðsbundnar áætlanir. Þrepin gera sölufólki kleift að vinna sér inn mismunandi þóknanir eftir árangri. Þau geta hafist á 0% og hækkað í skrefum, þannig að greitt sé jafnvel þó 100% markmið náist ekki, og einnig umfram 100% ef framúrskarandi árangur næst. Þrep eru stillt á þóknunar-flipanum í áætluninni.

Ef engin þrep eru skilgreind yfir 100% er ekki hægt að vinna sér inn hærri þóknun en grunnþóknun við markmið.

Dæmi: Í áætluninni hér að neðan byrja þrepin á 0% og ná upp í 300%. Ef sölumaður fer yfir 100% af væntum markmiðum heldur vænt útborgun áfram að hækka allt að 300%.

Dæmi um þóknunarþrep, með þrepum yfir 100%.

Árangursbundnar þóknunaráætlanir

Í árangursbundinni áætlun fær sölumaður fast hlutfall af reikningsfærðri upphæð í þóknun. Þetta hentar til stöðugrar umbunar óháð sértækum markmiðum, t.d. 5% þóknun af öllum reikningsfærðum upphæðum.

Ábending: Ólíkt markmiðsbundnum áætlunum eru árangursbundnar áætlanir reiknaðar á raunverulegum árangri með föstu hlutfalli. Þær henta fyrir áframhaldandi umbun án tiltekinna markmiða.

Uppsetning: Farðu í Sala > Þóknanir > Þóknunaráætlanir og smelltu á Nýtt. Í fellivalmyndinni Byggt á skaltu velja Árangur. Veldu síðan gildi í reitnum á hvern.

Uppfærðu Gildistími og stilltu Tíðni markmiða eftir því hve oft eigi að stilla og meta.

Á flipanum Árangur skaltu bæta við einum eða fleiri árangursmælikvörðum með því að smella á Bæta við nýjum árangri.

Opnaðu flipann Sölufólk til að úthluta áætluninni. Smelltu á Bæta við nýjum sölumanni eða Bæta við mörgum sölumönnum.

Árangur

Árangur í áætlunum er hægt að mæla á marga vegu. Stillt er fyrir hvern mælikvarða á flipanum Árangur í viðkomandi áætlun. Hægt er að mæla eftir öllum vörum, tilteknum vörum, vöruflokkum o.s.frv.

  • Upphæð seld: heildarvirði sölupantana (SOs).
  • Upphæð reikningsfærð: heildarvirði staðfestra reikninga.
  • Magn selt: heildarfjöldi seldra eininga í gegnum sölupantanir (SOs).
  • Magn reikningsfært: heildarfjöldi eininga sem hafa verið reikningsfærðar.
  • Framlegð: framlegð (söluverð mínus kostnaðarverð).
  • MRR: ný mánaðarleg endurtekin velta úr áskriftarsölu. Þessi valkostur er aðeins í boði ef forritið Áskriftir er uppsett.

Athugið: Óháð því hvort áætlun er byggð á Markmiðum eða Árangri þurfa allar áætlanir bæði stilltan Árangur og Markmið.

Samþykkt áætlunar

Eftir að áætlun er staðfest, smelltu á Samþykkja. Áætlunin færist úr stöðunni Drög í Samþykkt.

Mikilvægt: Þóknunaráætlanir í stöðunni Samþykkt er ekki hægt að breyta. Til að breyta þarf fyrst að Endurstilla í drög.

Eftir samþykkt fylgist Odoo sjálfkrafa með árangri og reiknar þóknanir samkvæmt skilgreindum forsendum.

Sjá einnig: Þóknanir

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.