Leiðarvísar > Vefir > Vefverslun

Afhendingarmátar

Odoo vefverslun gerir þér kleift að stilla marga afhendingarmáta, svo viðskiptavinir geti valið þann sem hentar þeim best í greiðsluferlinu. Má þar nefna samþættingu við ytri flutningsaðila og sérsniðna kosti eins og fast gjald, fríar sendingar eða sækja í verslun.

Tenging við ytri flutningsaðila

Þú getur tengst flutningsaðilum frá þriðja aðila, svo sem FedEx, UPS eða DHL til að straumlínulaga sendingar. Með tengingu við ytri aðila er hægt að búa til rakningarmiða sjálfvirkt og bjóða mörg afhendingarval í greiðsluferlinu.

Til að virkja flutningsaðila frá þriðja aðila:

  1. Farðu í Vefur → Uppsetning → Stillingar.
  2. Skrunaðu að hlutanum vefverslun (eCommerce).
  3. Undir Stilla afhendingarmáta, smelltu á Finna flutningsaðila.
  4. Á síðunni Nýir þjónustuaðilar, smelltu á hnappinn Afhendingarmátar hjá uppsettum aðila til að opna eyðublað afhendingarmáta, eða Setja upp til að bæta við nýjum aðila.
  5. Stillaðu afhendingarmátann.

Athugið

Sendingarverð, þar með talið Álag á taxta eða Viðbótarálagning sem skilgreind er á afhendingarmátanum (ef við á), birtist þegar þjónustuaðilinn er valinn í greiðsluferlinu.

Ábending

Þú getur líka tengt vefverslunina við sendingasamþjöppun eins og Sendcloud eða Envia.com, eða við afgreiðslu-/framleiðsluvettvang eins og Gelato.

Sérsniðinn afhendingarmáti

Sérsniðna afhendingarmáta þarf að búa til t.d. til að:

Til að stofna nýjan afhendingarmáta, farðu í Vefur → Uppsetning → Afhendingarmátar, smelltu á Nýtt og stilltu hann.

Ábending

Þegar þú hefur stillt afhendingarmáta geturðu:

  • Takmarkað hann við tiltekna vefsíðu með því að velja hana í reitnum Vefsíða.
  • Notað flipann Aðgengi til að skilgreina skilyrði út frá innihaldi pöntunar eða áfangastað.
  • Virkjað Greiðslu við afhendingu svo viðskiptavinir greiði við móttöku.
  • Bætt við reitnum Rakningartengill svo viðskiptavinir geti fylgst með pöntuninni á Mínum síðum (þjónustugátt).

Click & Collect

Til að leyfa viðskiptavinum að panta á netinu og sækja í verslun skaltu gera eftirfarandi:

  1. Farðu í Vefur → Uppsetning → Stillingar.
  2. Undir vefverslun, virkjaðu Click & Collect og vistaðu.
  3. Smelltu á Stilla sækjastaði til að stilla afhendingarmátann ef þarf, og gakktu úr skugga um að reiturinn Þjónustuaðili sé Stilltur á Sækja í verslun.
  4. Á flipanum Verslanir, smelltu á Bæta við línu og veldu þau vöruhús þar sem hægt er að sækja pantanir.
  5. Þegar uppsetningu er lokið, smelltu á Óbirt til að breyta stöðunni í Birt og gera afhendingarmátann aðgengilegan viðskiptavinum.

Athugið

  • Þegar vara er til á lager birtist staðsetningarval á vörusíðunni og á síðunni Heimilisfang í greiðsluferlinu. Ekki er hægt að velja sækjastað ef varan er ekki til þar, nema valkosturinn Halda sölu áfram fyrir uppseldar vörur sé virkur.
  • Ef valkosturinn Sýna tiltækt magn er virkur fyrir vöru, sjá viðskiptavinir tiltækt magn eftir vöruhúsum í staðsetningarvalinu á vörusíðunni.
  • Hvert vöruhús þarf að hafa fullt heimilisfang svo staðsetning birtist rétt. Ófullnægjandi heimilisföng koma í veg fyrir birtingu vöruhúss.
  • Í Fjölfyrirtæki-umhverfi verður fyrirtækið á vöruhúsinu að vera það sama og fyrirtækið á vefsíðunni þar sem afhendingarmátinn er notaður. Annars er ekki hægt að velja sækjastað.
  • Valkosturinn Click & Collect er ekki í boði fyrir þjónustu.
  • Sjálfgefið er greiðslumátinn Greiða á staðnum virkur og birtur þegar Click & Collect er virkjað.
© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.