Leiðarvísar > Birgðir og framleiðsla > Framleiðsla > Basic setup

Framleiðsla í einu skrefi

Odoo Framleiðsla gerir notendum kleift að framleiða vörur í einu, tveimur eða þremur skrefum. Í einskrefa ferli býr Odoo til MO, en stofnar ekki flutninga fyrir færslu íhluta út úr birgðum né móttöku fullunninna vara inn á lager. Birgðatalning uppfærast samt út frá fjölda notaðra íhluta og framleiddra vara, en sjálfar flutningsaðgerðirnar eru ekki skráðar.

Ábending

Fjöldi skrefa í framleiðslu er stilltur á vöruhúsinu, þannig að hvert vöruhús getur notað misjafnan fjölda skrefa. Til að breyta skrefum fyrir tiltekið vöruhús, farðu í: Birgðahald --> Stillingar --> Vöruhús og veldu vöruhús af skjánum Vöruhús.

Á flipanum Stillingar vöruhúss finndu valreitinn Framleiðsla og veldu eitt af þremur valkostum: Framleiða (1 skref), Taka til íhluti og síðan framleiða (2 skref) eða Taka til íhluti, framleiða og síðan setja vörur í birgðir (3 skref).

Valhnappurinn Framleiðsla á stillingasíðu vöruhúss.

Búa til framleiðslubeiðni

Til að framleiða vöru í Odoo Framleiðsla, farðu í: Framleiðsla --> Aðgerðir --> Framleiðslubeiðnir og smelltu á Nýtt til að stofna nýja MO.

Á nýrri MO, veldu vöruna sem á að framleiða úr fellivalmyndinni Vara. Reiturinn Uppskrift fyllist sjálfkrafa með tengdri uppskrift (BoM).

Ef vara er með fleiri en eina BoM er hægt að velja tiltekna BoM í reitnum Uppskrift; reiturinn Vara fyllist þá sjálfkrafa með samsvarandi vöru.

Eftir að BoM hefur verið valin fyllast fliparnir Íhlutir og Verkbeiðnir sjálfkrafa með þeim íhlutum og aðgerðum sem tilgreindar eru í uppskriftinni. Ef bæta þarf við íhlutum eða aðgerðum fyrir viðkomandi MO, smelltu á Bæta við línu á flipanum Íhlutir eða Verkbeiðnir.

Að lokum, smelltu á Staðfesta til að staðfesta MO.

Vinna úr framleiðslubeiðni

MO er unnin með því að ljúka öllum verkbeiðnum á flipanum Verkbeiðnir. Hægt er að gera það beint á MO eða úr spjaldsýn verkbeiðna.

Grunnferli

Til að ljúka verkbeiðnum beint af MO, farðu í: Framleiðsla --> Aðgerðir --> Framleiðslubeiðnir og veldu MO.

Á síðunni fyrir MO, opnaðu flipann Verkbeiðnir. Þegar vinna hefst við fyrstu verkbeiðni sem þarf að klára, smelltu á hnappinn Hefja fyrir þá verkbeiðni. Odoo Framleiðsla ræsir þá tímamæli sem skráir hve lengi verkbeiðnin tekur.

Hnappurinn Hefja fyrir aðgerð á framleiðslubeiðni.

Þegar verkbeiðni er lokið, smelltu á hnappinn Lokið fyrir þá verkbeiðni. Endurtaktu þetta fyrir hverja verkbeiðni á flipanum Verkbeiðnir.

Hnappurinn Lokið fyrir aðgerð á framleiðslubeiðni.

Eftir að hafa lokið öllum verkbeiðnum, smelltu á Framleiða allt efst á skjánum til að merkja MO sem Lokið og skrá fullunnar vörur í birgðir.

Ferli í Vinnusvæði

Til að ljúka verkbeiðnum fyrir MO í Vinnusvæði-einingunni, farðu í: Framleiðsla --> Aðgerðir --> Framleiðslubeiðnir og veldu MO.

Á MO, opnaðu flipann Verkbeiðnir og smelltu svo á hnappinn ↗️ (ferningur með ör sem stefnir út) á línu fyrstu verkbeiðni sem á að vinna. Það opnar Verkbeiðnir sprettiglugga með upplýsingum og úrvinnslumöguleikum fyrir verkbeiðnina.

Í sprettiglugganum, smelltu á Opna Vinnusvæði efst til vinstri til að opna eininguna Vinnusvæði.

Hnappurinn Opna Vinnusvæði fyrir verkbeiðni á framleiðslubeiðni.

Þegar farið er beint úr tilteknum verkbeiðnum innan MO opnast Vinnusvæði á síðu þeirrar vinnustöðvar sem verkbeiðnin á að fara fram í. Síðan sýnir kort fyrir verkbeiðnina með númeri MO, vörunni og fjölda eininga sem á að framleiða, og þeim skrefum sem þarf að ljúka.

Verkbeiðnikort á síðu vinnustöðvar í Vinnusvæði-einingunni.

Verkbeiðni er unnin með því að ljúka hverju skrefi á kortinu. Hægt er að smella á skref og fylgja leiðbeiningum í sprettiglugga sem birtist. Þegar skrefi er lokið, smelltu á Næsta til að fara í næsta skref, ef þörf er á.

Eða hakka í gátreitinn hægra megin á línu skrefsins á verkbeiðnikortinu. Þá er skrefið merkt sjálfkrafa sem lokið, án þess að sprettigluggi birtist.

Síðasta skref á verkbeiðnikorti heitir Skrá framleiðslu. Þetta skref er notað til að skrá fjölda framleiddra eininga. Ef framleiddur fjöldi er sá sami og MO er stofnuð fyrir, smelltu á hnappinn # einingar hægra megin á línunni til að skrá þann fjölda sjálfkrafa sem framleitt magn.

Ef skrá þarf annan fjölda, smelltu á skrefið Skrá framleiðslu til að opna sprettiglugga. Sláðu inn fjölda eininga í reitinn Einingar og smelltu síðan á Staðfesta til að skrá hann.

Athugið

Skrefið Skrá framleiðslu birtist á hverju verkbeiðnikorti. Það þarf að ljúka því á fyrstu verkbeiðni sem unnin er; eftir það birtist það sem þegar lokið á öllum síðari verkbeiðnum í MO.

Eftir að öllum skrefum tiltekinnar verkbeiðni er lokið birtist hnappur í fæti verkbeiðnikortsins. Ef ljúka þarf fleiri verkbeiðnum áður en loka má MO, heitir hnappurinn Merkja sem lokið. Ef engar frekari verkbeiðnir þarf að ljúka, heitir hnappurinn Loka framleiðslu.

Ef smellt er á Merkja sem lokið dofnar verkbeiðnikortið og hverfur. Þegar það hefur horfið er staða verkbeiðninnar merkt Lokið á MO og næsta verkbeiðni birtist í Vinnusvæði á síðu þeirrar vinnustöðvar sem hún á að fara fram í. Hægt er að vinna frekari verkbeiðnir með sömu skrefum og lýst er í þessum kafla.

Ef smellt er á Loka framleiðslu dofnar verkbeiðnikortið og hverfur. Þegar það hefur horfið er MO merkt sem Lokið og framleiddar einingar eru settar í birgðir.

Eftir að hafa smellt á Merkja sem lokið eða Loka framleiðslu kemur í staðinn hnappurinn Afturkalla. Smelltu á Afturkalla áður en verkbeiðnikortið hverfur til að halda verkbeiðninni opinni.

Ábending

Hér er lýst grunnferli við úrvinnslu MO í Vinnusvæði. Fyrir ítarlegri umfjöllun um eininguna og alla möguleika hennar, sjá leiðbeiningar.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.