Leiðarvísar > Birgðir og framleiðsla > Viðhald

Viðhaldsbeiðnir

Til að halda tækjum og vinnustöðvum í góðu ásigkomulagi þarf oft að framkvæma viðhald. Það getur annaðhvort verið fyrirbyggjandi viðhald, sem kemur í veg fyrir bilanir, eða leiðréttandi viðhald, sem er unnið til að laga biluð eða ónothæf tæki.

Í Viðhaldi í Odoo geta notendur búið til viðhaldsbeiðnir til að tímasetja og fylgjast með framkvæmd viðhalds á tækjum og vinnustöðvum.

Aðgangsheimildir viðhaldskerfis

Til að búa til viðhaldsbeiðni fyrir tæki þarf notandi að hafa aðgang að viðkomandi tæki. Þessu má ná fram með tvennum hætti:

  • Ef notandi hefur aðgangsstigið „Tækjastjóri“ fyrir forritið Viðhald, hefur hann aðgang að öllum tækjum í forritinu. Til að skoða eða breyta aðgangsheimildum notanda, farðu í Stillingar --> Stjórna notendum og opnaðu notandann. Á flipanum Aðgangsheimildir, farðu í hluta Aðfangakeðja og veldu Tækjastjóri í reitnum Viðhald í fellivalmynd.

    Aðgangsheimildir fyrir Aðfangakeðju á notandaskrá.
  • Ef notandi þarf ekki fullan aðgang að öllum tækjum er hægt að skrá hann sem fylgjanda á eitt eða fleiri tæki. Þá getur hann búið til viðhaldsbeiðnir fyrir það tæki án þess að breyta aðgangsheimildum. Til að bæta notanda sem fylgjanda, farðu í Viðhald --> Tæki --> Vélar og verkfæri og opnaðu tækið. Í samskiptaglugganum (chatter) smelltu á notendatáknið til að opna lista fylgjenda. Smelltu á Bæta fylgjendum við. Í sprettiglugganum Bæta fylgjendum við þetta skjal skaltu velja viðeigandi notanda í fellivalmyndinni Fylgjendur. Til að senda skilaboð og láta vita að hann hafi verið skráður sem fylgjandi, virkjaðu rofann Tilkynna viðtakendum. Smelltu síðan á Bæta fylgjendum við.

    Listi yfir fylgjendur á tækjaskrá, með hnappnum Bæta fylgjendum við auðkenndum.

Búa til viðhaldsbeiðni

Til að búa til nýja viðhaldsbeiðni, farðu í Viðhald --> Viðhald --> Viðhaldsbeiðnir og smelltu á Nýtt.

Fylltu út eyðublaðið og settu lýsandi titil í reitinn Beiðni (t.d. „Bora virkar ekki“).

Reiturinn Stofnað af fyllist sjálfkrafa af þeim notanda sem býr til beiðnina, en hægt er að velja annan notanda í fellivalmynd.

Í reitnum Fyrir veldu Tæki ef beiðnin er fyrir ákveðið tæki, eða Vinnustöð ef hún er fyrir vinnustöð.

Eftir því sem valið er í Fyrir birtist næsti reitur annaðhvort sem Tæki eða Vinnustöð. Veldu viðeigandi tæki eða vinnustöð í fellivalmynd.

Ef stillingin Sérsniðin viðhaldsverkblöð er virk í stillingum Viðhalds, birtist reiturinn Sniðmát verkblaðs fyrir neðan Tæki eða Vinnustöð. Notaðu hann til að velja verkblað sem starfsmaðurinn sem sinnir viðhaldinu fyllir út.

Reiturinn Dagsetning beiðni er sjálfgefið settur á stofndag beiðninnar og ekki hægt að breyta.

Í reitnum Tegund viðhalds veldu Leiðréttandi ef verið er að laga tiltekinn vanda, eða Forvarnar ef verið er að fyrirbyggja framtíðarmál.

Ef beiðnin tengist vanda sem kom upp við tiltekna framleiðslupöntun (MO), veldu hana í reitnum Framleiðslupöntun.

Ef valin var MO í reitnum Framleiðslupöntun, birtist reiturinn Verkbeiðni fyrir neðan. Tilgreindu þá verkbeiðni ef vandinn kom upp þar.

Í reitnum Teymi velur þú það viðhaldsteymi sem ber ábyrgð á beiðninni. Ef tiltekinn einstaklingur ber ábyrgð, veldu hann í reitnum Ábyrgðaraðili.

Reiturinn Áætluð dagsetning er notaður til að setja dagsetningu og upphafstíma viðhalds. Smelltu á reitinn til að opna dagatal í sprettiglugga, veldu dagsetningu, settu inn klukkustund og mínútur í reitina fyrir neðan dagatalið og smelltu á Staðfesta.

Í reitnum Tímalengd skaltu skrá þann tíma sem viðhaldið tekur, á forminu 00:00.

Ef valin var Vinnustöð í reitnum Fyrir, birtist gátreiturinn Læsa vinnustöð fyrir neðan Tímalengd. Virkjaðu hann til að koma í veg fyrir að verkbeiðnir eða annað viðhald verði tímasett á vinnustöðinni á meðan beiðnin er í vinnslu.

Reiturinn Forgangur er notaður til að gefa til kynna mikilvægi/áhættu beiðninnar. Veldu forgang milli núll og þriggja stjarna með því að smella á viðeigandi stjörnu. Beiðnir með hærri forgang birtast ofar en aðrar á Kanban-töflunni sem notuð er til að fylgjast með framvindu viðhaldsbeiðna.

Á flipanum Athugasemdir neðst á eyðublaðinu geturðu skráð frekari upplýsingar (hvers vegna vandinn kom upp, hvenær o.s.frv.).

Flipinn Leiðbeiningar er notaður til að setja inn leiðbeiningar um framkvæmd viðhalds. Veldu einn af þremur valkostum og bættu leiðbeiningum við eins og hér segir:

  • PDF: smelltu á Hladdu upp skránni þinni, opnaðu skráarstjóra tækisins og veldu skrá til að hlaða upp.
  • Google Slide: settu Google Slide hlekk í reitinn sem birtist.
  • Texti: sláðu inn leiðbeiningarnar í textareitinn sem birtist.
Fylt út viðhaldsbeiðni fyrir tiltekið tæki.

Vinna úr viðhaldsbeiðni

Þegar viðhaldsbeiðni hefur verið stofnuð birtist hún á stiginu Ný beiðni á síðunni Viðhaldsbeiðnir sem má opna í Viðhald --> Viðhald --> Viðhaldsbeiðnir.

Hægt er að færa beiðnir á milli stiga með því að draga og sleppa. Einnig er hægt að opna beiðni og velja óskað stig á stigastikunni efst hægra megin á eyðublaðinu.

Heppnaðar viðhaldsbeiðnir skal færa á stigið Viðgerð, sem gefur til kynna að tiltekið tæki eða vinnustöð hafi verið lagfært.

Misheppnaðar viðhaldsbeiðnir skal færa á stigið Farga, sem gefur til kynna að ekki hafi tekist að gera við tiltekið tæki eða vinnustöð og því þurfi að farga því.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.