Leiðarvísar > Studio

Samþykktarreglur

Samþykktarreglur sjálfvirknivæða samþykktaferli fyrir aðgerðir. Þær skilgreina skilyrði þess hvenær krafist er samþykkis áður en hægt er að framkvæma aðgerð með hnappi.

Stillingar

Til að bæta við samþykktarreglum með Studio, farðu svona að:

  1. Opnaðu Studio og skiptu yfir í viðeigandi yfirlit.
  2. Veldu hnappinn sem reglan á að gilda fyrir.
  3. Smelltu á Bæta við samþykktarþrepi á flipanum Eiginleikar.
  4. Skilgreindu hverjir bera ábyrgð á að samþykkja aðgerðina með því að nota einn eða báða eftirfarandi reiti:
    • Samþykkjendur til að tilgreina einn eða fleiri notendur;
    • Samþykkjendahópur til að tilgreina einn notendahóp.

    Athugið

    Aðgerð er stofnuð fyrir alla notendur sem eru settir sem Samþykkjendur þegar beðið er um samþykki þeirra.

  5. (valfrjálst) Veldu Notendur til að láta vita sem fá innanhúss athugasemd þegar aðgerð er samþykkt eða hafnað.
  6. (valfrjálst) Bættu við Lýsingu sem birtist á hnappnum.

Ábending

Þú getur skilgreint við hvaða skilyrði samþykktarþrep á að eiga við með því að smella á síutáknið við reitinn Samþykkjendur.

Til að bæta við öðru samþykktarþrepi, smelltu á Bæta við samþykktarþrepi. Ef það eru mörg þrep geturðu:

  • Virkjað Útilokandi samþykki á einhverju þrepi svo notandi sem samþykkir eitt þrep geti ekki samþykkt annað þrep fyrir sama færslu.
  • Breytt Röð samþykkta með því að velja númer; 1 er fyrsta þrep, 2 annað o.s.frv. Notandi sem ber ábyrgð á hærra þrepi getur samþykkt/hafnað fyrri þrepi(n) nema Útilokandi samþykki sé virkt.

Smelltu á ruslatáknið við reitinn Samþykkjendur til að fjarlægja samþykktarþrep.

Ábending

Þú getur stofnað sérstaka notendahópa fyrir samþykktir.

Notkun

Þegar samþykktarregla hefur verið skilgreind fyrir hnapp birtist tákn með notandamynd við hlið skýringartexta hnappsins fyrir hvert samþykktarþrep. Með því að smella á táknið sjást þrepin.

Staðfesta-hnappur með tveimur samþykktarþrepum

Athugið

Ef óheimill notandi smellir á hnappinn birtist villuboð og aðgerð er stofnuð fyrir notendur sem tilgreindir eru í reitnum Samþykkjendur, ef einhverjir eru.

Heimilir notendur geta:

  • Framkvæmt aðgerðina beint með því að smella á hnappinn ef þetta er síðasta/eina samþykktarþrepið.
  • Samþykkt aðgerðina og látið annan notanda framkvæma hana – eða fært hana á næsta samþykktarþrep – með því að smella á táknið með notandamynd við hlið skýringartexta hnappsins og síðan á samþykkja.
  • Hafnað aðgerðinni með því að smella á táknið með notandamynd við hlið skýringartexta hnappsins og síðan á hafna.
  • (aðeins fyrir notendur sem valdir eru í reitnum Samþykkjendur) Framselt samþykkisrétt sinn til eins eða fleiri notenda fyrir allar færslur með því að:
    • Smella á táknið fyrir kanban-yfirlit og síðan Framselja.
    • Velja einn eða fleiri Samþykkjendur, setja Til hvenær þeir hafa samþykkisrétt (að eilífu ef autt), og, valfrjálst, hvaða notendur eigi að láta vita með innanhúss athugasemd í reitnum Tilkynna til.

    Sprettigluggi: Framselja til

Ábending

  • Notandi sem samþykkir/hafnar aðgerð getur afturkallað ákvörðun sína með því að smella á táknið með notandamynd við hlið skýringartexta hnappsins og síðan á afturkalla. Hann getur einnig afturkallað ákvörðun annarra notenda fyrir þrep með lægri Röð samþykkta nema Útilokandi samþykki sé virkt.
  • Samþykktir eru skráðar í spjalli færslunnar. Einnig er stofnuð færsla í hvert skipti sem framkvæmd er aðgerð sem tengist samþykktum í Studio. Til að skoða þessar færslur, virkjaðu forritaraham og farðu í Stillingar → Tæknilegt → Færslur um Studio-samþykktir.
© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.