Leiðarvísar > Bókhald > Bókhald > Get started

Reikningaskrá

Reikningaskrá (COA) er listi allra reikninga sem notaðir eru til að skrá fjármagnsfærslur í aðalbók fyrirtækis. Reikningaskrána finnur þú undir Bókhald → Stillingar → Reikningaskrá.

Í yfirliti reikningaskrárinnar geturðu raðað reikningum eftir Kóða, Heiti reiknings eða Tegund. Aðrir valkostir eru í fellivalmyndinni.

Rofi fellivalmyndar Hópa reikninga eftir tegund í Odoo Bókhaldi

Stilling reiknings

Landið sem þú velur þegar gagnagrunnur (eða viðbótar fyrirtæki í gagnagrunninum) er stofnaður, ræður hvaða staðfærslupakki fyrir landsreglur er sjálfvirkt uppsettur. Sá pakki bætir við stöðluðu reikningaskrá sem er stillt samkvæmt reglum landsins, þar á meðal gjaldareikningum sem geta verið tengdir sjálfgefnum eignalíkönum. Þú getur notað reikningaskrána beint eða breytt henni að þínum þörfum.

Til að stofna nýjan reikning: Farðu í Bókhald → Stillingar → Reikningaskrá, smelltu á Búa til og fylltu að lágmarki út skyldusvið: Kóði, Heiti reiknings, Tegund.

Viðvörun

Ekki er hægt að breyta skattstaðfærslu (fiscal localization) fyrirtækis eftir að dagbókarfærsla hefur verið bókuð.

Kóði og heiti reiknings

Hver reikningur er auðkenndur með Kóða og Heiti reiknings sem jafnframt gefa til kynna tilgang reikningsins.

Tegund

Rétt stilling á Tegund reiknings er lykilatriði þar sem hún:

  • gefur upplýsingar um tilgang og hegðun reiknings,
  • myndar landssértækar lögboðnar og fjárhagslegar skýrslur,
  • setur reglur til að loka reikningsári,
  • býr til opnunarfærslur.

Til að stilla tegund reiknings: Opnaðu fellivalmynd sviðsins Tegund og veldu viðeigandi tegund af eftirfarandi lista:

Skýrsla Flokkur Reikningstegundir Lýsing
Efnahagsreikningur Eignir Viðskiptakröfur Fé sem viðskiptavinir skulda fyrir afhentar vörur eða þjónustu
Efnahagsreikningur Eignir Banki og handbært fé Fjármunir á bankareikningum fyrirtækis eða í sjóði
Efnahagsreikningur Eignir Veltufjármunir Skammtímaeignir sem búist er við að breytist í reiðufé innan eins árs
Efnahagsreikningur Eignir Varanlegar eignir Langtímaeignir sem ekki er búist við að breytist í reiðufé innan eins árs
Efnahagsreikningur Eignir Fyrirframgreiðslur Greiðslur fyrirfram fyrir vörur eða þjónustu sem á að móttaka síðar
Efnahagsreikningur Eignir Varanlegir rekstrarfjármunir Efnahagslegir rekstrarfjármunir til langs tíma, s.s. húsnæði, vélar og ökutæki, sem afskrifast
Efnahagsreikningur Skuldir Viðskiptaskuldir Fé sem fyrirtækið skuldir birgjum eða seljendum
Efnahagsreikningur Skuldir Kreditkort Staða og færslur sem tengjast notkun kreditkorta fyrirtækis
Efnahagsreikningur Skuldir Skammtímaskuldir Skuldbindingar sem eru gjaldfallnar innan eins árs, t.d. skammtímalán eða áfallinn kostnaður
Efnahagsreikningur Skuldir Langtímaskuldir Langtímaskuldir og fjárhagslegar skuldbindingar sem eru gjaldfallnar eftir meira en eitt ár
Efnahagsreikningur Eigin fé Eigin fé Eftirstöðvarhagsmunir eigenda í félaginu eftir að skuldir hafa verið dregnar frá eignum
Efnahagsreikningur Eigin fé Afkoma ársins Uppsafnaður hagnaður eða tap yfirstandandi reikningsárs
Rekstrarreikningur Tekjur Tekjur Tekjur af meginstarfsemi fyrirtækisins
Rekstrarreikningur Tekjur Aðrar tekjur Tekjur af aukastarfsemi eða utan rekstrar, s.s. vextir eða sala eigna
Rekstrarreikningur Gjöld Gjöld Kostnaður sem fellur til við rekstur til að afla tekna
Rekstrarreikningur Gjöld Afskriftir Dreifing kostnaðar varanlegra eigna yfir notkunartíma þeirra
Rekstrarreikningur Gjöld Kostnaður seldra vara og þjónustu Beinn kostnaður við framleiðslu eða afhendingu vara og þjónustu
Annað Annað Utan efnahags Færslur sem birtast ekki á efnahags- eða rekstrarreikningi

Eignir

Reikningstegundirnar Fixed Assets og Non-current Assets geta sjálfvirknivætt stofnun eignafærslna. Til að virkja sjálfvirkni, smelltu á View á línu reiknings og farðu á flipann Automation.

Í Automation flipanum eru þrír valkostir:

  1. No: sjálfgefið gildi. Ekkert gerist.
  2. Create in draft: þegar færsla er bókuð á reikninginn, er búin til drög að færslu sem er ekki staðfest. Þú þarft fyrst að fylla út samsvarandi eyðublað.
  3. Create and validate: þú þarft einnig að velja Deferred Expense Model. Þegar færsla er bókuð á reikninginn, er færsla búin til og staðfest strax.

Sjálfgefnir skattar

Í View valmynd reiknings skaltu velja Default Taxes sem eiga að gilda þegar þessi reikningur er valinn fyrir sölu eða innkaup vöru.

Merki

Sumar bókhaldsskýrslur krefjast þess að merki séu sett á viðeigandi reikninga. Til að bæta við merki, undir View, smelltu á Tags reitinn og veldu fyrirliggjandi merki eða Create til að búa til nýtt.

Reikningahópar

Reikningahópar nýtast til að skrá marga reikninga sem undirreikninga stærri reiknings og þannig samþætta skýrslur eins og Prófjöfnuð. Sjálfgefið eru hópar stjórnaðir sjálfvirkt út frá kóða hópsins. Til dæmis mun nýr reikningur 131200 tilheyra hópnum 131000. Þú getur tengt tiltekinn hóp við reikning í reitnum Group undir View.

Búa til reikningahópa handvirkt

Athugið

Almennir notendur ættu ekki að þurfa að búa til reikningahópa handvirkt. Eftirfarandi á aðeins við í sjaldgæfum og sértækum tilvikum.

Til að búa til nýjan reikningahóp, virkjuðu forritaraham og farðu í Bókhald --> Stillingar --> Reikningahópar. Búðu til nýjan hóp og skráðu heiti, kóðaforskeyti og fyrirtæki sem hópurinn á að vera tiltækur hjá. Athugaðu að þú verður að setja sama kóðaforskeyti í bæði reitina From og to.

Stofnun reikningahópa.

Til að birta Prófjöfnuð með reikningahópum skaltu fara í Bókhald --> Skýrslugerð --> Prófjöfnuður, opna Valkostir og velja Hierarchy and Subtotals.

Reikningahópar í prófjöfnuði í Odoo Bókhaldi

Leyfa jöfnun

Til að halda jöfnun einfaldri, þegar verið er að jafna banka-, reiðufjár- eða kreditkortafærslu við fyrirliggjandi bókhaldsfærslu, eru aðeins birtar sem mögulegir samsvarendur þær færslur sem debet- eða kreditfæra reikninga þar sem valkosturinn Allow reconciliation er virkur.

Til að virkja þennan valkost á reikningi, hakaðu við gátreitinn Allow Reconciliation í stillingum reiknings og Vista; eða virkjaðu hnappinn í yfirliti reikningslykilsins.

Sameiginlegir reikningar

Eiginleikinn Shared Accounts gerir kleift að búa til einn reikning fyrir ákveðinn tilgang og deila honum milli margra fyrirtækja. Þetta er sérlega gagnlegt í Fjölfyrirtæki umhverfi þar sem sambærilegur reikningur er notaður hjá ólíkum fyrirtækjum.

Úrelt

Ekki er hægt að eyða reikningi eftir að færsla hefur verið bókuð á hann. Þú getur gert hann ónothæfan með Úrelt eiginleikanum: hakaðu við reitinn Deprecated í stillingum reiknings og Vista.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.