Leiðarvísar > Bókhald > Bókhald > Vendor bills

Reikningaröð birgjareikninga

Þegar birgjareikningur er staðfestur býr Odoo til einkvæmt tilvísunarnúmer. Sjálfgefið snið er BILL/year/month/incrementing-number (t.d. BILL/2025/01/00001) og byrjar aftur á 00001 á hverju ári.

Hægt er að breyta sniði raðnúmers og tíðni og endurraða raðnúmerum birgjareikninga í einu.

Athugið

Breytingar á tilvísunarnúmerum eru skráðar í spjalli.

Breyta sjálfgefnu röðinni

Til að sérsníða sjálfgefna röð: Opnaðu síðasta staðfesta birgjareikning, smelltu á Setja aftur í drög og breyttu tilvísunarnúmeri reikningsins.

Breyting á tilvísunarnúmeri birgjareiknings.

Odoo sýnir síðan hvernig greint snið verður notað á alla framtíðargögn. Til dæmis, ef mánuðurinn er tekinn út úr núverandi sniði, breytist tíðnin í árlega í stað mánaðarlegrar.

Stilling á tilvísunarnúmeri birgjareiknings.

Ábending

Hægt er að breyta sniðinu beint þegar fyrsti birgjareikningur tímabilsins er búinn til.

Endurraða raðnúmerum birgjareikninga í einu

Stundum er gagnlegt að endurraða mörgum tilvísunarnúmerum birgjareikninga, t.d. þegar reikningum er hlaðið inn úr öðru bókhaldskerfi og halda þarf samfellu fyrir yfirstandandi ár án þess að byrja upp á nýtt.

Athugið

Þessi virkni er aðeins aðgengileg notendum með aðgangsstig stjórnanda eða ráðgjafa.

Farðu svona að til að endurraða raðnúmerum:

  1. Virkjaðu forritaraham.
  2. Í listayfirliti birgjareikninga, veldu þá reikninga sem þurfa nýja röð.
  3. Smelltu á valmyndina Aðgerðir og veldu Endurraða raðnúmerum.
  4. Í reitnum Röðun skaltu velja:
    • Halda núverandi röðun: Númeraröðin helst óbreytt.
    • Raða eftir bókunardegi: Númerum er endurraðað eftir bókunardegi.
  5. Stilltu Fyrsta nýja raðnúmer.
  6. Smelltu á Forskoða breytingar og síðan Staðfesta.
Gluggi með stillingum til að endurraða raðnúmerum

Athugið

  • Til að sýna hvar röðunin breyttist er fyrsti birgjareikningurinn í nýju röðinni merktur rauður í listanum Birgjareikningar. Þetta sjónræna merki er varanlegt og eingöngu upplýsandi.
  • Ef óreglur koma upp í nýju röðinni, t.d. bil, ógiltar eða eyddar færslur innan opins tímabils, birtist skilaboðið Bil í runu í dagbókinni Birgjareikningar á mælaborði Bókhalds. Smelltu á Bil í runu til að sjá nánari upplýsingar um viðkomandi reikning(a). Þetta merki er tímabundið og hverfur þegar bókunardagsetning færslunnar er á eða eftir lásdagsetningu.

Ábending

Ekki er hægt að endurraða þegar:

  • Færslur eru á undan lásdagsetningu.
  • Röð leiðir til tvítektar.
  • Bil er ógilt. Til dæmis ef Dagsetning reiknings samræmist ekki dagsetningu í nýju röðinni, s.s. 2024-röð (BILL/2024/MM/XXXX) fyrir birgjareikning sem er dagsettur 2025.

Í þessum tilvikum birtist skilaboðið Staðfestingarvilla.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.