Leiðarvísar > Bókhald > Payment providers

Buckaroo

Buckaroo er hollenskt fyrirtæki sem býður upp á margvíslegar netgreiðslulausnir.

Stillingar í Buckaroo Plaza

  1. Skráðu þig inn á Buckaroo Plaza, farðu í My Buckaroo → Websites og veldu flipann Push settings.
  2. Hakaðu við gátreitinn Enable Push Response í hlutanum Delayed and Push responses.
  3. Sláðu inn slóðina á Odoo-gagnagrunninn þinn, með /payment/buckaroo/webhook aftast, bæði í reitina Push URI Success/Pending og Push URI Failure. Dæmi: https://yourcompany.odoo.com/payment/buckaroo/webhook.
  4. Hafðu aðra reiti óbreytta og smelltu á Save.
  5. Á flipanum General, afritaðu website Key (lykilinn sem auðkennir vefinn þinn hjá Buckaroo) og vistaðu hann til seinni nota.
  6. Farðu í Configuration → Security → Secret key, sláðu inn eða veldu Generate fyrir Secret key og smelltu á Save. Vistaðu lykilinn til seinni nota.

Stillingar í Odoo

  1. Farðu í greiðsluveituna Buckaroo og stilltu stöðuna á Virkt.
  2. Á flipanum Aðgangsupplýsingar (Credentials), fylltu reitina Veflykill (Website Key) og Leynilykill (Secret Key) með gildunum sem þú vistaðir í skrefinu Stillingar í Buckaroo Plaza.
  3. Stilltu valkostina á öðrum flipum eftir þörfum.

Sjá einnig

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.