Leiðarvísar > Bókhald > Payment providers

Worldline

Worldline er franskt fyrirtæki og fjórði stærsti greiðslumiðlari heims.

Stillingar í Worldline

Búa til API-notanda

Mælt er með að setja upp API-notanda til að stofna færslur úr Odoo, svo uppsetningin haldist örugg jafnvel þótt aðgangsupplýsingar leki. API-notendur þurfa líka sjaldnar að uppfæra lykilorð en venjulegir notendur.

  1. Skráðu þig inn á Worldline Merchant Portal, smelltu á táknið fa-th (valmynd) og veldu Back Office.
  2. Farðu í Configuration → Users og smelltu á New User.
  3. Stilltu eftirfarandi reiti:
    1. Tilgreindu Notandakenni, Nafn notanda, Netfang og Tímabelti að eigin vali.
    2. Settu Profile á Admin.
    3. Virkjaðu Special user for API.

Ábending

  • Ef þú hefur þegar sett upp notanda, gakktu úr skugga um að hann sé virkur án villna.
  • Til að prófa greiðsluflæðið með Worldline skaltu nota prófunarumhverfi þeirra ásamt prófunarham.

Setja upp Worldline fyrir Odoo

Nú þarf að stilla Worldline til að taka við greiðslum frá Odoo.

  1. Í Merchant Portal: Farðu í Developer → Payment API og smelltu á Generate API key. Afritaðu API key ID og Secret API key og vistaðu fyrir síðar.
  2. Farðu í Developer → Webhooks og smelltu á Generate webhook keys. Afritaðu Webhook ID og samsvarandi Secret webhook key og vistaðu fyrir síðar.
  3. Smelltu á Add webhook endpoint, sláðu inn slóð gagnagrunns þíns í Odoo með viðbótinni /payment/worldline/webhook í reitinn Endpoint url og staðfestu. Til dæmis: https://example.odoo.com/payment/worldline/webhook.

Stillingar í Odoo

Til að setja upp Worldline í Odoo:

  1. Farðu í greiðslumiðlarann Worldline og breyttu stöðunni í Virkt.
  2. Á Auðkenni-flipanum skaltu færa inn PSPID fyrir Worldline-reikninginn þinn og fylla út API Key, API Secret, Webhook Key og Webhook Secret með gildunum sem þú vistaðir í skrefinu Setja upp Worldline fyrir Odoo.
  3. Stilltu annað eftir þörfum.

Sjá einnig

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.