Leiðarvísar > Framleiðni > Töflureiknir > Insert

Setja inn línurit

Til að setja inn línurit úr Odoo-gagnagrunni í Odoo-töflureikni:

  1. Opnaðu viðeigandi línuritsyfirlit í gagnagrunninum og smelltu á Setja inn í töflureikni.
  2. Í glugganum sem opnast, breyttu Heiti línurits ef þarf.
  3. Smelltu á Tómur töflureiknir til að búa til nýjan töflureikni, eða veldu í hvaða fyrirliggjandi töflureikni eigi að setja línuritið.

    Athugið

    Þegar línuriti er bætt inn í nýjan töflureikni, er töflureiknirinn vistaður í Odoo Documents, í persónulegu möppunni Mitt drif.

  4. Smelltu á Staðfesta.

Línurit eru sett á fyrsta blað töflureiknisins. Spjald hægra megin á skjánum sýnir eiginleika línurits, þar sem hægt er að breyta ýmsum atriðum í uppsetningu og útliti línuritsins.

Sjá einnig

Stjórna línuritum

Ábending

Ef þú smellir á gagnapunkt í línuriti opnast viðeigandi listayfirlit í gagnagrunninum. Í dæminu opnar það að smella á Jessica Childs listayfirlit allrar sölu þessa sölumanns sem passar við skilyrði línuritsins.

Smellanlegur hlekkur á Odoo-valmynd og smellanlegur gagnapunktur
© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.