Leiðarvísar > Sala > Kassakerfi > Payment methods > Terminals

Adyen

Að tengja Adyen posa við Odoo Point of Sale býður upp á hnökralausa greiðsluupplifun fyrir viðskiptavini og einfaldar vinnu afgreiðslufólks.

Mikilvægt

  • Adyen posar þurfa ekki IoT Box.
  • Adyen posar eru í boði í mörgum löndum, en ekki alls staðar. Skoðaðu lista yfir lönd sem Adyen styður.
  • Adyen þjónustar aðallega stærri fyrirtæki og getur krafist lágmarksfjölda færslna og lágmarks veltu í gegnum kerfið.

Stillingar Adyen

Byrjaðu á að stofna Adyen aðgang og panta posa í gegnum Adyen Customer Area. Þegar posinn er kominn, stilltu tækið samkvæmt leiðbeiningum á skjánum.

Til að tengja Adyen posann við Odoo þarftu að:

Ábending

Skráðu þig inn á Test account til að prófa samþættinguna án þess að rukka viðskiptavini. Skiptu yfir á Live account þegar þú ert tilbúin(n) að taka við greiðslum.

Búa til Adyen API-lykil

Adyen API-lykillinn auðkennir beiðnir frá Adyen posa. Til að búa til lykil:

  1. Farðu í Adyen Customer Area.
  2. Farðu í Developers → API credentials í vinstri valmynd.
  3. Veldu til staðar auðkenni (credentials) eða búðu til ný:
    1. Smelltu á Create new credential.
    2. Í Create API credential sprettiglugga, veldu Web service user sem Credential type.
    3. Settu valkvætt inn Description.
    4. Smelltu á Create credential.
  4. Í hlutanum Server settings á síðunni Configure API credential, smelltu á Generate API key við hliðina á API key reitnum.
  5. Smelltu á (Copy API key) og vistaðu gildið fyrir skrefið stofnun greiðslumáta í Odoo.
  6. Smelltu á Save changes.

Finna auðkenni Adyen posa (POIID)

Auðkenni Adyen posa, einnig kallað POIID, er einkvæmt strengjaauðkenni sem auðkennir sjálft greiðslutækið.

Til að finna auðkennið:

  1. Farðu í Adyen Customer Area.
  2. Farðu í In-person payments → Payment devices til að skoða lista yfir öll tækin þín.

    Ábending

    Virkt tæki er merkt með (grænn punktur).

  3. Veldu posann sem á að tengja.
  4. Ábending

    Ef þú ert með fleiri en eitt tæki, finndu rétt tæki með raðnúmerinu á bakhlið þess.

  5. Á síðunni Settings, smelltu á auðkennið til að afrita það á klippispjaldið og vistaðu gildið fyrir skrefið stofnun greiðslumáta í Odoo.
Smellt á auðkenni tækis til að afrita á klippispjald.

Upplýsingar

Auðkennið samanstendur af gerð tækis og raðnúmeri, t.d. S1F2L-000158215112256.

Finna heiti söluaðilareiknings (merchant account)

Til að finna heiti söluaðilareiknings:

  1. Farðu í Adyen Customer Area.
  2. Farðu í In-person payments → Payment devices.
  3. Veldu posann sem á að tengja.
  4. Í stillingum posans, smelltu á heiti Merchant.
  5. Smelltu á heiti söluaðilareikningsins til að afrita það á klippispjaldið og vistaðu fyrir skrefið stofnun greiðslumáta í Odoo.
Smellt á heiti merchant account til að afrita á klippispjald.

Stilla Event URL

Til að Odoo geti tekið á móti tilkynningum um greiðslur þarftu að stilla Event URLs á posanum. Gerðu eftirfarandi:

  1. Farðu í Adyen Customer Area.
  2. Farðu í In-person payments → Payment devices.
  3. Veldu posann sem á að tengja.
  4. Í stillingum tækisins, veldu Integrations í vinstri valmynd.

    Mikilvægt

    Gakktu úr skugga um að þú sért að stilla Terminal level terminal settings, ekki Merchant level terminal settings.

    Terminal level terminal settings.
  5. Stilltu reitinn Switch to decrypted mode to edit this setting á Decrypted.
  6. Smelltu á Add new eða breyttu núverandi URL með því að smella á blýantinn .
  7. Í Add URL eða Edit URL sprettiglugga, límdu Event URL úr greiðslumátaformi Odoo.

Upplýsingar

Event URL samanstendur af vistfanginu á vefþjóninum, á eftir fylgir /pos_adyen/notification.

  1. Ef þarf, settu inn Username (optional) og Password (optional), skilgreindu hvort URL sé Public eða Local, og kveiktu/slökktu á Enable encryption.
  2. Smelltu á Add URL, eða ef þú ert að breyta, Edit URL.
  3. Smelltu á Save neðst á síðunni.
  4. Skiptu yfir á Encrypted ham.

Stillingar í Odoo

Til að stilla Adyen í Odoo þarftu fyrst að virkja Adyen og búa til greiðslumáta. Stilltu síðan Adyen-sértæka reiti á greiðslumátaforminu:

  1. Límdu eftirfarandi gildi í samsvarandi reiti:
  2. Afritu Event URL með því að smella á (copy) og límdu í Adyen reikninginn.
  3. Virkjaðu Adyen prufuham ef þú ert enn að prófa samþættinguna.

Ábending

Hægt er að leyfa viðskiptavinum að bæta við þjórfé beint á Adyen posa, sem og eftir greiðslu í veitingasölu.

Sjá einnig

Greiðslumátar

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.