Leiðarvísar > Þjónusta > Vettvangsþjónusta

Stofna verk í Field Service

Í Odoo Field Service má stofna verk handvirkt eða sjálfvirkt, m.a. út frá sölupöntunum eða Helpdesk-beiðnum.

Handvirk stofnun verka

Til að stofna nýtt verk í Field Service:

  1. Opnaðu Field Service og farðu í Field Service → Öll verk → Öll verk.
  2. Smelltu á Nýtt.
  3. Fylltu út heiti verks, Viðskiptavinur og önnur valkvæð svið, og vistaðu.

Stofnun verks úr sölupöntun

Þessi virkni býr sjálfkrafa til verk í Field Service út frá sölupöntun. Þegar þú býrð til tilboð með þjónustuvöru og staðfestir það, stofnast verk sjálfkrafa í Field Service-verkefninu þínu. Smelltu á snjallhnappinn Verk á sölupöntuninni til að opna verkið.

Stofnun verks úr Helpdesk-beiðni

Ef Helpdesk er uppsett geturðu stofnað verk í Field Service úr þjónustubeiðni.

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.