Leiðarvísar > Þjónusta > Vettvangsþjónusta

Verkblöð

Verkblöð hjálpa starfsfólki í vettvangsþjónustu að framkvæma og skrá verkin á staðnum. Þau geta innihaldið ýmislegt efni, t.d. leiðbeiningar, verkefnalista o.fl. Þú getur einnig sniðið verkblaðið með gátreitum, punktalistum, auðri reitafyllingu, HTML, og bætt við skrám, myndum, tenglum o.fl.

Algengt er að fyrirtæki framkvæmi sömu tegund vettvangsverka ítrekað. Með sérsniðnum sniðmátum verkblaða þarftu ekki að búa til sama verkblaðið upp á nýtt í hvert sinn sem svipað verk er skipulagt.

Stillingar

Farðu í Vettvangsþjónusta -> Uppsetning -> Stillingar, virkjaðu Verkblöð og smelltu á Vista.

Viðvörun

Sniðmát verkblaða eru hönnuð í Studio. Að virkja eiginleikann Verkblöð setur sjálfkrafa upp forritið Studio, sem getur haft áhrif á áskriftarleiðina þína.

Búa til sniðmát verkblaðs

Farðu í Vettvangsþjónusta -> Uppsetning -> Sniðmát verkblaða. Smelltu á Nýtt og gefðu sniðmátinu heiti. Vistaðu handvirkt og smelltu síðan á Hanna sniðmát til að opna Studio og sérsníða sniðmátið.

Í Studio dregurðu og sleppir þeim reitum sem þú vilt úr vinstri dálkinum yfir á verkblaðið hægra megin. Til að endurraða reitum á verkblaðinu, dragðu þá í rétta röð. Smelltu á reit til að sérsníða eiginleika hans.

Þegar sniðmátið er tilbúið, smelltu á Loka efst til hægri til að hætta í Studio.

Bæta sniðmáti verkblaðs við vettvangsverk

Opnaðu verkið, veldu Sniðmát verkblaðs og smelltu á Vista.

Sjálfgefið er valið sniðmátið “Default Worksheet”. Til að skilgreina annað sjálfgefið sniðmát, smelltu á táknið ➔ (Innri tengill) sem birtist þegar þú færir músina yfir reitinn Verkefni á verkforminu.

Færðu músina yfir reitinn Verkefni til að stilla sjálfgefið sniðmát verkblaðs

Opnaðu síðan flipann Stillingar, skrunaðu niður í kaflann Vettvangsþjónusta og veldu það Sniðmát verkblaðs sem á að vera sjálfgefið.

Nota verkblöð á vettvangi

Til að ljúka verkblaði á vettvangi, opnaðu verkið og smelltu á snjallhnappinn Verkblað.

Athugið

  • Um leið og þú vistar verkblað, breytist textinn á snjallhnappinum Verkblað á verkinu í Verkblað lokið, jafnvel þótt einhverjir reitir séu enn auðir.
  • Reitir sem eru merktir sem Nauðsynlegt verða að vera útfylltir til að hægt sé að vista verkblað.
© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.