Leiðarvísar > Vefir > Vefverslun

Google Merchant Center

Google Merchant Center er verkfæri sem gerir vefverslunum kleift að halda utan um og senda vörugögn til Google. Það er miðlægur vettvangur fyrir upphleðslu og viðhald á upplýsingum um vörur, svo sem myndum, verðum og lýsingum, þannig að vörurnar birtist á vettvöngum Google.

Athugið

Google Merchant Center er aðeins í boði fyrir áþreifanlegar vörur og styður ekki þjónustu.

Ábending

Við mælum með að nota verkfærið samhliða öðrum Google-þjónustum, eins og Google Search Console, Google Analytics eða Google Tag Manager, til að fá ítarlegar skýrslur um frávik í vörulistum, bæta markaðssetningu, auka sýnileika vara á netinu og styrkja heildarsölu.

Uppsetning Google Merchant Center

Til að tengja vefverslunina við GMC skaltu gera eftirfarandi:

  1. Búðu til eða skráðu þig inn á Google-aðgang með eftirfarandi hlekk: https://business.google.com/us/merchant-center.
  2. Gefðu upp að þú seljir vörur á netinu og sláðu inn Your store's website.
  3. Smelltu á Continue og síðan Continue to Merchant Center.
  4. Skráðu upplýsingar um fyrirtækið með því að fylla út Business name og Registered country og smelltu svo á Continue to Merchant Center.
  5. Bættu við viðeigandi upplýsingum og smelltu á Continue; eða smelltu á Do it later til að sleppa þessu skrefi í bili.
  6. Farðu í flipann Business info í vinstri valmynd og smelltu á Confirm online store.
  7. Staðfestu eignarhald á vefsvæðinu með einni af eftirfarandi aðferðum:

    Ábending

    Þú getur einnig staðfest eignarhald á vefsvæðinu beint af stjórnborði Google Merchant Center með því að fara í Settings --> Business Info í vinstri valmynd.

  8. Farðu aftur í GMC, smelltu á Verify your online store og síðan Continue.

Tengja Odoo við GMC

Mikilvægt

Til að nota GMC-tenginguna í Odoo þarf að minnsta kosti ein verðskrá að vera tengd vefsvæðinu.

  1. Farðu í Vefsíða --> Uppsetning --> Stillingar, skrunaðu að kaflanum Tracking & SEO, virkjaðu Google Merchant Center og Vistau.

Athugið

Þegar þú virkjar Google Merchant Center býr vefurinn til kvikt /gmc.xml straumskjal með lykilupplýsingum um vörur og framboð.

  1. Smelltu á Manage feeds.
  2. Í Product Feeds sprettiglugganum skaltu velja verðskrá, tungumál og flokka, og síðan Vista.

Athugið

Virkja þarf viðkomandi tungumál í stillingum vefsvæðisins og/eða stofna verðskrá í viðkomandi gjaldmiðli með valkostinum Valanlegt virkjaðan.

  1. Smelltu á Copy URL við viðeigandi straum.
  2. Farðu á stjórnborð GMC, opnaðu flipann Products & store --> Products í vinstri valmynd og smelltu á Add products.
  3. Veldu Add products from a file og límdu þar inn slóðina sem þú afritaðir.

Mikilvægt

Veldu öll þau lönd sem þú hyggst selja í. Ekki er hægt að halda áfram án þess að velja að minnsta kosti eitt markaðsland. Ef þörf krefur skaltu einnig setja inn feed label.

Veldu lönd, tilgang og merki straums í GMC.
  1. Smelltu á Continue.

Ábending

  • Hægt er að tengja Odoo vefverslun við aðra vettvanga, t.d. TikTok og Facebook og Instagram. Afritaðu þá GMC vörustraums-slóðina og límdu hana í viðeigandi reit á völdum vettvangi.
  • Til að breyta gjaldmiðli straums handvirkt: Farðu í Products í GMC, smelltu á Manage product sources og veldu Products source. Farðu í Data source setup, smelltu á Show advanced options og veldu Currency.
  • Búðu til eins marga strauma og þarf og stofnaðu marga Product sources í GMC. Til þess: víkkaðu út Products & store valmyndina (fa-caret-down), farðu í Products, opnaðu fellivalmyndina Add products (fa-caret-down) og veldu Add another product source.
© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.