Leiðarvísar > Birgðir og framleiðsla > Birgðahald > Shipping receiving > Setup configuration

Reikningagerð sendingarkostnaðar

Að rukka viðskiptavini fyrir sendingu eftir afhendingu tryggir rétta gjaldtöku út frá rauntímaþáttum eins og vegalengd, þyngd og aðferð.

Í Odoo er hægt að reikningsfæra sendingarkostnað á tvo vegu:

  1. Semja um fasta upphæð og setja hana inn á sölupöntun.
  2. Rukka raunverulegan sendingarkostnað eftir afhendingu, þannig að hann endurspegli raunútgjöld fyrirtækisins.

Uppsetning

Til að setja verð á afhendingaraðferðir: Farðu í Birgðahald → Uppsetning → Stillingar. Undir Sendingar virkjarðu Afhendingaraðferðir og smellir svo á Vista.

Virkja valkostinn Afhendingaraðferðir í Stillingum.

Bæta við afhendingaraðferð

Stilltu svo verð fyrir hverja aðferð: Farðu í Birgðahald → Uppsetning → Afhendingaraðferðir og smelltu á Stofna. Opnast þá form þar sem skilgreina má upplýsingar um flutningsaðila, m.a.:

  • Afhendingaraðferð (skylda): heiti aðferðarinnar (t.d. föst gjaldtaka, afhending samdægurs).
  • Flutningsaðili (skylda): veldu flutningsþjónustu (t.d. FedEx) ef notaður er utanaðkomandi flytjandi. Gakktu úr skugga um að samþætting við flutningsaðila sé uppsett og veldu svo aðila úr fellivalmynd.
  • Fyrirtæki: veldu tiltekið fyrirtæki ef aðferðin á aðeins að gilda þar. Láttu vera autt til að láta gilda hjá öllum fyrirtækjum.
  • Vefsvæði: stilltu afhendingaraðferðir fyrir vefverslun. Veldu viðeigandi vefsvæði eða láttu autt til að láta gilda á öllum síðum.
  • Afhendingarvara (skylda): varan sem birtist á sölupöntunarlínu sem sendingargjald.
  • Ókeypis ef pöntunarfjárhæð er yfir: hakaðu við til að bjóða fríar sendingar ef pöntun fer yfir tiltekna fjárhæð.

Rukka sendingarkostnað á sölupöntun

Til að reikningsfæra sendingarkostnað á sölupöntun (áður en vara er afhent): Opnaðu Sala og veldu viðkomandi sölupöntun.

Á sölupöntuninni, smelltu á hnappinn Bæta við sendingu neðst til hægri.

Smelltu á Bæta við sendingu neðst til hægri, við hliðina á samtalsupphæð.

Í sprettiglugganum Bæta við afhendingaraðferð skaltu velja fyrirhugaðan flytjanda í reitnum Afhendingaraðferð.

Smelltu síðan á Fá verð til að reikna sendingarverð út frá rauntímagögnum úr samþættingu Odoo við flutningsaðila.

Kostnaður er reiknaður sjálfkrafa út frá þyngd hlutanna á pöntuninni. Að lokum, smelltu á Bæta við til að loka glugganum.

Reiknaðu sendingargjald með því að velja afhendingaraðferð.

Á sölupöntuninni birtist afhendingarvaran á flipanum Pöntunarlínur, þar sem Einingaverð er stillt sem sendingarkostnaðurinn sem reiknaður var í sprettiglugganum Bæta við afhendingaraðferð.

Sýnir afhendingarvöru á sölulínu pöntunar.

Eftir afhendingu vörunnar skaltu smella á Búa til reikning. Þá myndast reikningur sem inniheldur sendingarkostnaðinn sem áður var bætt við.

Hnappurinn Búa til reikning.

Smelltu síðan á Búa til og skoða reikning; drög að reikningi myndast og sendingarkostnaður birtist á flipanum Reikningslínur.

Sýnir afhendingarvöru á reikningslínu.

Rukka raunverulegan sendingarkostnað

Til að láta reikning endurspegla raunverulegan sendingarkostnað: Fylgdu skrefunum hér að ofan til að búa til reikning með afhendingarvöru þar sem Einingaverð er núll.

Breyttu síðan Einingaverði á reikningsdrögum þannig að það samsvari raunverulegum sendingarkostnaði. Að lokum, rukkaðu viðskiptavininn fyrir leiðréttan kostnað með því að smella á Staðfesta.

Sýnir afhendingarvöru á reikningslínu með uppfærðu verði.
© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.