Leiðarvísar > Framleiðni > Rafræn undirritun > Validity

Lögmæti Odoo Sign í Íran

Odoo Sign er traustur samstarfsaðili þinn fyrir öruggar, skilvirkar og löglega samþykktar rafrænar undirskriftir í Íran.

Lagarammi fyrir rafrænar undirskriftir í Íran

Í Íran falla rafrænar undirskriftir undir írönsku borgaralögin og lög um rafræn viðskipti. Lögin gilda um notkun rafrænna gagna og undirskrifta. Helstu atriði eru:

  • Lagaleg viðurkenning: rafrænar undirskriftir eru jafngildar eiginhandarundirskriftum ef ákveðnum skilyrðum er fullnægt.
  • Áreiðanleiki og öryggi: rafrænar undirskriftir skulu búnar til með öruggri aðferð sem áreiðanlega auðkennir undirritanda og tryggir heilleika skjalsins.

Hvernig Odoo Sign uppfyllir íranskar reglur

Odoo Sign tryggir fullt samræmi við lög um rafrænar undirskriftir í Íran með eftirfarandi eiginleikum:

  • Örugg undirritun: Odoo Sign notar háþróaðar dulritunaraðferðir til að tryggja áreiðanleika og heilleika rafrænna undirskrifta.
  • Auðkenning frá þriðja aðila: Odoo Online þjónar sem sjálfstæð staðfestingarleið sem bætir við auknu öryggislagi í innkaupaferlinu.
  • Eftirlitsskrár: ítarlegar skráningar eru haldnar til sönnunar undirritunarferlinu, þar á meðal tímasetningar, IP-tölur og auðkenningarstaðfesting.
  • Dulkóðaður rekjanleiki og óbreytanleiki: Odoo Sign tryggir að allar aðgerðir séu skráðar á öruggan hátt. Eftirlitsskrá veitir öllum aðilum fullt gagnsæi án þess að raska einkagögnum.
  • Margvísar auðkenningarleiðir: auðkenning með SMS, tölvupósti, geoIP eða rafrænni eiginhandarundirskrift.

Skjöl sem þú getur undirritað með Odoo Sign

Odoo Sign hentar fyrir margs konar skjöl, þar á meðal:

  • Samningar og samkomulög: viðskiptasamningar, ráðningarsamningar og þjónustusamningar.
  • Fjárhagsleg skjöl: lánasamningar, fjárfestingarskjöl og fjárhagsskýrslur.
  • Mannauðsskjöl: ráðningar- og innleiðingaeyðublöð, trúnaðaryfirlýsingar (NDA) og frammistöðumat.
  • Viðskipti: innkaupapantanir, sölusamningar og samningar við birgja.

Mögulegar undantekningar

Þrátt fyrir víðtæka notkun eru til undantekningar þar sem rafrænar undirskriftir henta ekki eða njóta ekki lagalegrar viðurkenningar í Íran:

  • Erfðaskrár og traustssjóðir (trusts): skjöl um arf, erfðaskrár og traustssjóði krefjast oft eiginhandarundirskrifta.
  • Fasteignaviðskipti: sum viðskipti kunna enn að krefjast staðfestra eiginhandarundirskrifta hjá löggiltum notara.
  • Eyðublöð stjórnvalda: tiltekin eyðublöð og umsóknir stjórnvalda geta krafist skriflegra undirskrifta á pappír.

Fyrirvari

Upplýsingarnar á þessari síðu eru eingöngu almenns eðlis og fela ekki í sér lögfræðiráðgjöf. Þótt Odoo Sign uppfylli lög um rafrænar undirskriftir í Íran, ættu notendur að ráðfæra sig við lögfræðinga til að tryggja að tiltekin skjöl og notkunartilvik uppfylli öll lagaskilyrði. Einnig getur verið nauðsynlegt að uppfylla frekari kröfur sem tengjast tilteknum atvinnugreinum.

Síðast uppfært: 21. júní 2024

© 2026 Exigo ehf.Íslensk þýðing, framsetning og aðlögun: Exigo ehf.